árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
Starfsmaður UNICEF hitti hinn átta ára gamla Jefferson í miðstöð fyrir umkomulaus börn í hjarta Port-au-Prince á Haítí. Jefferson hafði dvalið þar í tvær vikur, einn af þúsund börnum sem höfðu orðið viðskila við fjölskyldur sínar í kjölfar jarðskjálftans mikla 12. janúar síðastliðinn.
Mál Jefferson var á forsíðum fjölmiðla um allan heim fyrir skömmu. Hann var einn af þeim 33 börnum sem hópur bandarískra trúboða reyndi að taka úr landi 29. janúar. Hópurinn var stöðvaður af lögreglunni á landamærum Haítís og Dóminíska lýðveldisins. Yfirvöld segja að hópurinn hafi ekki haft lögleg gögn og að mörg barnanna hafi ekki verið munaðarlaus.
Nokkrum vikum eftir þessa dramatísku atburðarrás talaði félagsráðgjafi við Jefferson. Félagsráðgjafinn var þjálfaður af UNICEF og fékk það verkefni að skrá börn sem væru viðskila við fjölskyldur sínar.
Mikilvæg smáatriði
Sum barnanna höfðu orðið fyrir svo alvarlegu sálrænu áfalli vegna jarðskjálftanna að þau mundu ekki eftirnafnið sitt. Í þannig tilvikum sést hversu mikilvægt það er að þeir sem tali við börnin hafi fengið rétta þjálfun.
Í byrjun var Jefferson skiljanlega feiminn og ekki í ástandi til að tjá sig. Eftir smá tíma gat hann slakað á og byrjaði að tala.
Þá kom fljótlega í ljós að Jefferson mundi eftir deginum sem hann var numinn á brott af bandarísku trúboðunum, allt niður í smáatriði. Það sem meira var, hann mundi nafn móður sinnar og heimilisfang fyrrum heimilis síns. Hann gat meira að segja lýst fyrir félagsráðgjafanum máltíðum sem mamma hans bjó til fyrir hann.
Leitin að fjölskyldunni
,,Stundum er auðvelt að finna fjölskyldurnar," sagði barnaverndarfulltrúi UNICEF, Benoit Fournier. ,,Það fer eftir aldri barnsins og ef hann eða hún man nafn móður sinnar, það hjálpar mikið. Í sumum tilvikum hefur nágranni komið til hjálpar og gefið upplýsingar, til dæmis ef móðirin er dáin eða ef hún hefur flutt í annað hverfi eða annan landshluta. Í þeim tilvikum biðjum við teymin okkar og samstarfsaðila að leita fjölskyldurnar uppi með þeim upplýsingum sem liggja fyrir hendi," sagði Fournier.
Ferlið við að sameina börn við foreldra sína eða aðra nána ættingja gengur hægt og er oft sársaukafullt. Allt til dagsins í dag hafa barnaverndarfulltrúar skráð yfir 500 viðskila börn. En áætlað er að þúsundir barna séu enn viðskila í og í kringum höfuðborgina.
Fjölskylduvænt umhverfi
Mörg börn enda í umönnunar-miðstöðvum, önnur hafa fengið skjól hjá fósturfjölskyldu, en það er leið sem er betri fyrir þau á margan hátt samkvæmt barnaverndarfulltrúa UNICEF, Marie de la Soudiére.
,,Börn þurfa að vera í fjölskylduvænu umhverfi, þar sem þau geta leikið við önnur börn og þar sem fullorðnir geta hugsað um þau," sagði de la Soudiére. ,,Sérstaklega þegar neyðarástand hefur skapast geta munaðarleysingjahæli virkilega skapað munaðarleysingja, jafnvel þó foreldrar viðkomandi séu enn til staðar."
Árangur af barnaverndarverkefnum UNICEF á Haítí eru augljós. Jefferson og hin 33 börnin hafa nú verið komið fyrir hjá ættingjum sínum og umönnunaraðilum. Að hjálpa börnum sem þessum að finna fjölskyldur sínar er stór hluti af starfi UNICEF á Haítí um þessar mundir og verður áfram.