Vissir þú að...

UNICEF treystir því eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja, félagasamtaka og ríkisstjórna.

Þú ert hér:  

Söfnun á Íslandi vegna hjálparstarfs í Pakistan

UNICEF hefur hafið söfnun meðal almennings á Íslandi vegna neyðaraðstoðar á flóðasvæðunum í Pakistan. Hægt er að styrkja hjálparstarfið með því að hringja í sérstök söfnunarnúmer: 908-1000, 908-3000 eða 908-5000. Einnig er hægt að styrkja hér á heimasíðu okkar.

Að minnsta kosti 15 milljónir manna hafi orðið illa úti í flóðunum í Pakistan - þar af er um helmingurinn börn. Það er mat UNICEF í Pakistan að um 3,5 milljónir þessara barna þurfi lífsnauðsynlega á tafarlausri aðstoð að halda. Hundruð þúsunda manna hafa nú þegar fengið aðstoð en milljónir fleiri þurfa hjálp í formi húsaskjóls, matar, vatns og heilsugæslu. Búist er við að fjöldi þeirra sem þurfa aðstoð geti vaxið töluvert á næstu dögum.

Vegna skorts á hreinlætisaðstöðu og ómenguðu vatni á flóðasvæðunum hefur nú myndast gríðarleg hætta á smitsjúkdómum á við niðurgang og kóleru. Næstu dagar munu skipta sköpum í að hindra útbreiðslu sjúkdóma meðal hundruð þúsunda barna og fjölskyldna þeirra.

UNICEF í Pakistan einbeitir sér því að verkefnum sem miða að því að tryggja aðgengi að ómenguðu vatni og hreinlætisaðstöðu ásamt því að útvega næringu handa yngstu börnunum, sjúkragögn og bráðabirgðaskýli. Á hverjum degi útvega samtökin 1,3 milljónum manna ómegnað vatn en milljónir til viðbótar þurfa á sömu aðstoð að halda.

Dreifing á 100 tonnum af hjálpargögnum
Samtökin hafa flutt um 100 tonn af hjálpargögnum til hamfarasvæðanna, svo sem segldúka, stór tjöld sem nota má sem bráðabirgðaskólastofur og –heilsugæslustöðvar, sjúkragögn, næringarmáltíðir og sölt til að hindra uppþornun hjá ungum börnum. Ein aðalvörugeymsla UNICEF í landinu skemmdist illa og því er mikil þörf fyrir utanaðkomandi aðstoð í formi hjálpargagna. Dreifing hjálpargagna hefur hafist til kvenna og barna á þeim svæðum sem verst urðu úti í flóðunum.