Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

Nýr stjórnarformaður UNICEF á Íslandi

Svanhildur Konráðsdóttir er nýr stjórnarformaður Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF, en hún hefur setið í stjórn samtakanna í þrjú ár. Tilkynnt var um þetta á aðalfundi UNICEF á Íslandi í Þjóðminjasafninu í dag.

Svanhildur tekur við af Þórunni Sigurðardóttur sem setið hefur í stjórn UNICEF frá stofnun samtakanna hér á landi og verið stjórnarformaður síðustu tvö ár. Svanhildur er sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðasókn, tekur sæti í stjórn UNICEF í stað Þórunnar.

Á fundinum kynnti Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, nýja skýrslu um mansal á börnum í Gíneu-Bissá, en rannsókn á þessum vanda var gerð að ósk UNICEF í Gíneu-Bissá og styrkt af UNICEF á Íslandi. Höfundar skýrslunnar eru auk Jónínu þeir Geir Gunnlaugsson landlæknir, Gunnlaugur Geirsson laganemi og Hamadou Boiro mannfræðingur.

Framlög UNICEF á Íslandi til hjálparstarfs
Framlög Barnahálpar Sameinuþjóðanna á Íslandi til hjálparstarfs á síðasta ári námu tæpri 241 milljón króna, þar af fóru yfir 114 milljónir til valinna verkefna í löndum eins og Austur-Kongó, Mósambík, Síerra Leóne og til neyðarhjálpar á hernumdu svæðum Palestínu.  Tæp 127 milljónir voru sendar til reglubundinna verkefna UNICEF, sem þýðir að UNICEF útdeilir þeim eftir því hvar þörfin er mest. Skiptir mestu um framlag heimsforeldra, mánaðarlegra styrktaraðila UNICEF, en 64% af heildartekjum kom frá þeim.

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi er ein af 36 landsnefndum sem starfa í nafni UNICEF í efnaðri löndum heimsins. Landsnefndir UNICEF sinna fjölbreyttum hlutverkum en aðalmarkmið þeirra er  að afla styrkja við starf UNICEF í þágu barna um allan heim og standa að fræðslu um réttindi barna í sínu heimalandi.  Landsnefndir UNICEF safna einum þriðja af heildarinnkomu UNICEF. Landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi var stofnuð árið 2004 og hefur hlotið viðurkenningu á vettvangi landsnefndanna fyrir árangur í söfnun fyrir bágstödd börn.