á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Þúsundir barna hafa misst foreldra sína eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar í kjölfar jarðskjálftans á Haítí. Þessi börn eru afar berskjalda gegn ofbeldi og misnotkun. Samhliða því sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) vinnur nú hörðum höndum að því að mæta brýnustu þörfum ungra eftirlifenda hörmunganna er mikil áhersla lögð á að tryggja varnarlausum börnum nauðsynlega vernd.
Nú þegar hefur UNICEF hafist handa við að hafa upp á fjölskyldum eða öðrum forsjáraðilum umhyggjulausra barna, í náinni samvinnu við stjórnvöld á Haítí, Save the Children og Rauða krossinn. Samtökin vinna einnig að því að koma upp svokölluðum „öruggum svæðum“ fyrir börn sem hafa orðið viðskila við fjölskydur sínar og útvega munaðarlausum börnum mat og aðrar nauðsynjar.
„Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sameina þessi börn aftur fjölskyldum sínum,“ sagði framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, í gær um leið og hún lýsti yfir miklum áhyggjum samtakanna af kringumstæðum barna á hamfarasvæðinu. „Aðeins þegar slíkt er fullreynt, og að undangengnu formlegu og fullnægjandi ferli, ætti að leiða hugann að lausnum eins og ættleiðingu og þá af viðeigandi yfirvöldum,“ bætti hún við en UNICEF hefur lýst áhyggjum af fregnum um ótímabærar ættleiðingar til annarra landa.
Hætta á misnotkun og mansali
Yfirmaður barnaverndar hjá UNICEF, Susan Bissell, áréttaði hættuna á að berskjalda börn á Haítí lentu í klónum á óprúttnum aðilum og yrðu m.a. flutt úr landi í vafasömum tilgangi. Hún sagði jafnframt að það væri skelfilegt til þess að vita að jarðskjálftinn hafi eyðilagt mörg af þeim hjálparúrræðum sem myndu undir öðrum kringumstæðum vernda börn gegn vá á borð við misnotkun og mansal.
Bisell sagði ennfremur að þrátt fyrir þessar áskoranir myndi UNICEF finna úrræði til að sigrast á þeim.
Tæplega helmingur allra Hatítí-búa er yngri en 18 ára og nálægt 40% eru undir 14 ára aldri.
Barnavernd og réttindi barna
Önnur mannúðarsamtök og stofnanir hafa vakið máls á vernd barna á Haítí í kjölfar jarðskjálftans. Í yfirlýsingu barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna (e. UN Committee on the Rights of the Child), frá 15. Janúar sl., er tekið fram að börn séu „sérstaklega berskjalda undir þessum kringumstæðum“. Ennfremur segir: „Þörf er á tafarlausum aðgerðum til að vernda börn, einkum og sér í lagi börn sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar …“ Í lok tilkynningarinnar er skorað á alþjóðasamfélagið að leggja sitt af mörkum „til að gera börnum kleift að endurheimta eðlilegt og öruggt líf, svo þau geti öðlast framtíðarvon á ný.“
Íslendingar hafa gefið 3,5 milljónir til hjálparstarfs UNICEF
UNICEF á Íslandi hefur að undanförnu tekið á móti framlögum frá Íslendingum í gegnum heimasíðu samtakanna og söfnunarsímanúmerin 908-1000, 908-3000 og 908-5000. Alls hafa safnast um 3,5 milljónir króna.