Tónleikar til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Haítí
Gogoyoko og Sódóma Reykjavík standa að tónleikum til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Haítí í kvöld, fimmtudaginn 28. janúar. Sex hljómsveitir koma fram og gefa þær allar vinnu sína. Miðaverð er hóflegt, 1.000 krónur, og rennur andvirði miðasölunna óskipt til UNICEF auk þess sem tekið er á móti frjálsum framlögum á staðnum.
Eins og heimsbyggðin hefur fyglst með ríkir mikil neyð á Haítí í kjölfar öflugs jarðskjálfta sem reið yfir landið þan 12. janúar. Mannfall var gríðarlegt og innviðir landsins eru í lamasessi. Hundruð þúsunda misstu heimili sín og syrgja nú ættinga sína og vini. Aðgangur að ómenguðu drykkjarvatni er víða takmarkaður og ljóst er að neyðin er gríðarleg fyrir hundruð þúsunda barna og fjölskyldur þeirra.
Þá hafa þúsundir barna hafa misst foreldra sína eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar í hamförunum. Þessi börn eru afar berskjalda gegn ofbeldi og misnotkun.
Hljómsveitirnar sem fram á Sódóma Reykjavík í kvöld eru:
Bloodgroup
kimono
Morðingjarnir
Ourlives
13
Retro Stefson dj's
Þess má geta að tónleikarnir eru með fulltyngi Hljóð X sem lánar allan tækjabúnað endurgjaldslaust.
Börn í forgang
Forgangsatriði UNICEF er að ná til barna og tryggja þeim fæðu, heilsugæslu, öruggt skjól og umönnun. UNICEF vinnur hörðum höndum að því að mæta brýnustu þörfum ungra eftirlifenda hörmunganna og vinnur ötullega að því að tryggja varnarlausum börnum nauðsynlega vernd og sálræna aðstoð. Sett hafa verið upp örugg svæði fyrir börn víðsvegar um hamfarasvæðið og börn sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar eru skrásett og þeim veitt umönnun.
Um helmingur Haítí-búa er undir 18 ára aldri og um 40% eru yngri en 14 ára.
Hvert framlag skiptir máli
Með stuðningi þínum hjálpar þú UNICEF að ná til barna sem á þurfa á brýnni aðstoð að halda. Til dæmis aðstoðar þú UNICEF við að ná til meira en 250.000 manna með dreifingu á vatni, þar á meðal til sjúkrahúsa, barnaheimila og tjaldbúða þar sem fjölskyldur sem misst hafa heimili sín dvelja. Einnig mun UNICEF á næstu dögum bólusetja 600.000 börn gegn mislingum, stífkrampa og blóðkreppusótt til þess að vernda þau gegn hinu óhrjálega umhverfi hamfarasvæðisins.
Sú fátækt og óstöðugleiki sem einkenndu Haítí fyrir jarðskjálftann gera allt hjálparstarf erfiðara. Að sama skapi er því nauðsynlegt að uppbygging á Haítí eftir skjálftann miði að því að byggja upp betri innviði en fyrir voru fyrir börn og fjölskyldur þeirra. UNICEF hefur starfað á Haítí í meira en 60 ár samtökin munu halda áfram að starfa ötullega að bættum hag barna þar í landi meðan þörf er fyrir hendi.
Hægt er að styrkja hjálparstarf UNICEF á Haítí hér eða með því að hringja í síma 908-1000, 908-3000 eða 908-5000, en þá gjaldfærast 1.000, 3.000 eða 5.000 krónur á símreikning viðkomandi.