Starfsfólk UNICEF á Haítí vinnur við erfiðar aðstæður
UNICEF hefur verið með starfsemi á Haítí frá 1949. Starfsfólk samtakanna hefur smám saman náð að aðlaga sig að erfiðum aðstæðum í kjölfar jarðskjálftans sem skók landið af svo tortímandi mætti þann 12. janúar síðastliðinn. Það vinnur nú hörðum höndum að því að koma lífsnauðsynlegum hjálpargögnum til þurfandi barna.
Neyðin á Haítí er neyð barna eins og nánar má lesa um hér; nærri 40% allra Haítí-búa eru undir 14 ára aldri og mörg eru berskjalda gegn allskyns hættum.
Hér er hægt að horfa á viðtal við starfsfólk UNICEF á Haítí og fá innsýn inn í þær aðstæður sem það þarf að glíma við.