Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

Viðbrögð vegna jarðskjálftanna í Chile

UNICEF er í viðbragðsstöðu eftir jarðskjálftann á Chile síðastliðinn laugardag, sem mældist 8,8 á Richter-skala. Talið er að um 700 manns hafi látist í jarðskjálftanum og 1,5 milljónir manna hafi misst heimili sín, auk þess sem skólar, sjúkrahús, vegir og aðrar byggingar eyðilögðust. Allt starfsfólk UNICEF í Chile virðist hafa komist af.

Eins og sakir standa vinnur UNICEF í Chile með stjórnvöldum á staðnum til að mæta þörfum barna eftir skjálftana, en stjórnvöld í Chile telja enn ekki nauðsynlegt að biðja um alþjóðlega aðstoð. Louis-Georges Arsenault, yfirmaður neyðarverkefna UNICEF, sagði að öll framlög sem berist til UNICEF alþjóðlega myndu berast til Chile ef þörf krefði. UNICEF gæti hugsanlega aðstoðað á sviði vatnshreinsunar og verndunar barna, en ef ástandið versnar ekki mun hvorki UNICEF eða Sameinuðu þjóðirnar óska eftir alþjóðlegri aðstoð.

Jarðskjálftinn á sér stað aðeins sex og hálfri viku eftir jarðskjálftann á Haítí, sem var þó ekki eins harður en eyðileggingarmáttur hans var mikill eins og öllum er kunnugt. Hjálparstarf UNICEF á Haítí heldur áfram og mun ekki standa í vegi fyrir hjálparstarfi í Chile á þeim vettvangi sem sérfræðiþekking UNICEF mun nýtast.