Vissir þú að...

UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.

Þú ert hér:  

Ný sending komin til landsins

© UNICEF ÍslandLoftbelgjabolir UNICEF og Kronkron seldust upp í síðasta mánuði. Pantaðir voru 500 nýir bolir sem nú eru komnir í verslanir. Tveimur litum var bætt við sendinguna; dökkbleikum og grænum. Aðrir litir eru grár og ljósblár. Bolirnir fást áfram í Kronkron og Spútnik í Kringlunni, en einnig í Gyllta kettinum. Auk þess mun Iceland Airwaves vera í samstarfi við UNICEF um sölu bolanna og selja þá á stærsta tónleikastaðnum á hátíðinni, Listasafni Reykjavíkur.