Fulltrúaráð
Hlutverk fulltrúaráðs UNICEF á Íslandi er að vera íslenskri landsnefnd fyrir UNICEF til stuðnings í starfi sínu í þágu barna, hérlendis sem og erlendis, með tilliti til markmiða og stefnu skipulagsskrárinnar.
Í ráðinu eru einstaklingar sem hafa áhuga á og geta stutt starf UNICEF Ísland og láta með því velferð barna sig varða. Fulltrúar í ráðinu koma úr öllum geirum samfélagsins og eru með mismunandi bakgrunn og reynslu.
Fulltrúaráðið var stofnað í nóvember 2004 og hafa fundir verið haldnir 1-2 á ári síðan þá.
![]() |
Formaður fulltrúaráðsins er Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður.
|
.jpg)