93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.
Þú ert hér:
UNICEF hefur notið mikillar velvildar ýmissa fyrirtækja sem hafa gefið vinnu, veitt afslætti eða með öðrum hætti beint krafti sínum og sérþekkingu til hjálpar starfsemi UNICEF á Íslandi. Eftirfarandi upptalning á styrktar- og samstarfsaðilum er ekki tæmandi og ljóst að mörg fyrirtæki og enn fleiri einstaklingar hafa lagt sín lóð á vogarskálarnar til að gera starfsemi UNICEF á Íslandi mögulega.
365 miðlar
Með Stöð 2 í fararbroddi voru 365 miðlar helsti samstarfsaðili UNICEF á Íslandi í tengslum við viðamiklar sjónvarpssafnanir á degi rauða nefsins árin 2006 og 2009. Einnig voru 365 miðlar einn af fjórum styrktaraðilum UNICEF og V-dagsins í tengslum við vitundar- og söfnunarátak í þágu þolenda kynferðisofbeldis í Austur-Kongó í september 2009. Fréttablaðið, Stöð 2, Vísir.is og útvarpsstöðvar fyrirtækisins hafa allar lagt lóð á vogaskálarnar í þessum verkefnum auk þess sem stuðningur við önnur verkefni hafa verið starfi UNICEF dýrmæt.
Borgun
Borgun hefur fellt niður millifærslukostnað við greiðslur heimsforeldra. Þar sem fjöldi heimsforeldra er mikill skiptir samstarf við kreditkortafyrirtækin mjög miklu máli þar sem stuðningur þeirra dregur verulega úr rekstrarkostnaði.
Bónus
Í tengslum við fjáröflunarátakið dag rauða nefsins árin 2006 og 2009 voru rauð nef til styrktar UNICEF til sölu í verslunum Bónuss um land allt. Bónus tók enga söluþóknun.
Davíð & Golíat
Í mars 2010 tók fyrirtækið Davíð og Golíat yfir hýsingu tölvukerfis UNICEF á Íslandi. Fyrirtækið veitir landsnefndinni vildarkjör auk þess sem starfsmenn þess hafa reynst afar hjálplegir og sinnt fjölmörgum verkefnum án þess að taka fyrir það greiðslu.
Deloitte
Allt frá upphafi hefur Deloitte séð um að endurskoða reikninga UNICEF á Íslandi og útbúa ársreikninga landsnefndarinnar. Deloitte hefur jafnframt spilað mikilvægt hlutverk í að bæta innra starf UNICEF á Íslandi með því að auka gegnsæi í fjármálum og bæta verklag.
DK Hugbúnaður
Árið 2007 tók UNICEF á Íslandi í notkun nýtt bókhalds- og sölukerfi. Fyrirtækið DK Hugbúnaður gaf UNICEF kerfið og aðstoðaði við uppsetningu þess. Ári síðar gaf DK Hugbúnaður UNICEF á Íslandi hugbúnað sem heldur utan um alla styrktaraðila landsnefndarinnar og hefur, UNICEF að kostnaðarlausu, aðstoðað við að laga kerfið að þörfum UNICEF. DK Hugbúnaður hefur gefið hluta af þjónustu sinni og veitt afslátt af útseldri vinnu.
EJS
Um árabil veitti EJS UNICEF á Íslandi margvíslega þjónustu. Meðal annars var um að ræða hýsingu á vef og pósti starfsmanna, afritun gagna og ýmislegt fleira. Var stuðningur EJS til þess fallinn að draga verulega úr rekstrarkostnaði.
Hagkaup
Í september 2009 var Hagkaup einn af fjórum styrktaraðilum UNICEF og V-dagsins í tengslum við vitundar- og söfnunarátak í þágu þolenda kynferðisofbeldis í Austur-Kongó. Rauð nef hafa verið seld í verslunum Hagkaups í tengslum við dag rauða nefsins 2006 og 2009 án þess að verslunin tæki söluþóknun. Hagkaupa hefur einnig selt Jólakort og gjafavöru UNICEF í stærstu verslunum sínum.
Íslandsbanki
Íslandsbanki er þjónustubanki UNICEF á Íslandi. Bankinn veitir ýmsa afslætti af þjónustu sinni.
Lögmenn Höfðabakka
Lögmenn Höfðabakka hafa frá stofnun UNICEF á Íslandi stutt dyggilega við landsnefndina með því að veita lögfræðiaðstoð, s.s. við samningsgerð, úttekt á starfsemi landsnefndarinnar, ráðgjöf o.fl. Lögmenn Höfðabakka veittu auk þess skrifstofuaðstöðu hjá fyrirtækinu og ómetanlegan stuðning þegar undirbúningur að stofnun landsnefndarinnar stóð yfir.
Microsoft
Við stofnun landsnefndar UNICEF á Íslandi styrkti Microsoft starfsemi samtakanna með office-hugbúnaði. Með milligöngu Microsoft á Íslandi var hugbúnaður skrifstofunnar svo endurnýjaður árið 2008, UNICEF að kostnaðarlausu.
Morgunblaðið
UNICEF Ísland hefur fengið afslætti af auglýsingum og dreifingu á kynningarefni til áskrifenda Morgunblaðsins í tengslum við fjáraflanir. Morgunblaðið hefur tekið þátt í að vekja athygli á réttindum og skyldum allra barna með því að styðja við verkefni í tengslum við tímamót í sögu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Morgunblaðið lagði einnig sitt af mörkum til fréttaritaraþjálfunar unga fólksins sem fram fór í mars og apríl 2009.
Námsgagnastofnun
UNICEF á Íslandi hefur verið í samstarfi við Námsgagnastofnun varðandi gerð kennsluefnis og dreifingu á bæklingi um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem dreift er til allra 6. og 7. bekkinga á landinu. Námsgagnastofnun hýsir kennsluefni UNICEF í lífsleikni, Allir eiga rétt, og hefur verið landsnefndinni innan handar við kynningu á námsefninu. Stofnunin hefur einnig unnið með UNICEF á Íslandi að vefnum www.barnasattmali.is.
Orkuveita Reykjavíkur
Í tilefni af alþjóðlegum vatnsdegi 22. mars 2008 stóðu UNICEF á Íslandi og Orkuveita Reykjavíkur fyrir vitunda- og fjáröflunarátaki undir heitinu Vatnsvikan. Orkuveitan stóð straum af öllum kostnaði við átakið auk þess að leggja til 1,1 milljón krónur til vatnsverkefna UNICEF í þróunarlöndunum.
Pegasus
Í gegnum árinu hefur Pegasus veitt UNICEF á Íslandi góðan afslátt af framleiðslu sjónvarpsefnis og kennsluefnis fyrir UNICEF-hreyfinguna.
Penninn
Penninn hefur selt jólakort UNICEF um árabil.
Reitir
Fasteignafélagið Reitir á skrifstofuhúsnæði UNICEF Ísland að Laugavegi 42 í Reykjavík. Reitir veita UNICEF, UNIFEM og Félagi Sameinuðu þjóðanna verulegan afslátt af leigu og gerði skrifstofurýmið upp með glæsilegum hætti þannig að það hentaði starfsemi félaganna þriggja.
Ríkisútvarpið (RÚV)
Í tilefni af heimsdegi barna í fjölmiðlum 1. mars 2009 undirrituðu UNICEF á Íslandi og Ríkisútvarpið undir samstarfsyfirlýsingu um að auka þátttöku og sýnileika barna og ungmenna í fjölmiðlum. Afraksturinn var m.a. fréttaritaraþjálfun ungs fólks og útvarpsþáttaröð á Rás 1 um Barnasáttmálann í tilefni 20 ára afmæli hans í nóvember 2009.
Saga film
Saga film hefur verið traustur samstarfsaðili UNICEF á Íslandi við framleiðslu sjónvarpsefnis, þá sérstaklega á degi rauða nefsins. Saga film hefur veitt landsnefndinni mikinn afslátt af framleiðslukostnaði auk þess sem starfsfólk fyrirtækisins hefur gefið afslátt af launum.
Samskip
Samskip veitir endurgjaldslausa umsjón og geymslu á birgðum.
Skjár einn
Skjár einni studdi dyggilega við landsnefndina á fyrstu árunum með útsendingu tveggja sjónvarpssöfnunarþátta, einum árið 2004 og öðrum 2005. Skjár einn veitti UNICEF á Íslandi einnig endurgjaldslausa tækniaðstoð vegna sjónvarpsauglýsinga sem birtar voru á sjónvarpsstöðini haustið 2009 auk þess að birt umræddar auglýsingar á afar hagstæðum kjörum.
Te & Kaffi
Te og Kaffi hafa verið í samstarfi við UNICEF á Íslandi frá haustinu 2008 um sölu á kaffi til fyrirtækja þar sem hluti af söluandvirði vörunnar rennur til UNICEF. Verkefnið fer fram reglulega. Einnig hafa kaffihús Te & Kaffi boðið viðskiptavinum sínum að styrkja starf UNICEF með sölu sérstakra styrktarspjalda þar sem allur ágóði rennur til UNICEF.
Valitor
Valitor sem sér um VISA á Íslandi hefur endurgreitt UNICEF kostnað við greiðslur heimsforeldra til UNICEF. Samstarf við kreditkortafyrirtækin skiptir UNICEF á Íslandi mjög miklu máli enda dregur stuðningur þeirra verulega úr rekstrarkostnaði.
Vodafone
Árin 2006 og 2009 var Vodafone einn af lykilsamstarfsaðilum UNICEF á degi rauða nefsins. Símsvörun vegna fjáröflunar á degi rauða nefsins fór fram í símaveri Vodafone auk þess sem aragrúi sjálfboðaliða úr starfsliði fyrirtækisins lagði átakinu lið. Vodafone styður einnig við starfsemi UNICEF með mánaðarlegu fjárframlagi upp á 50 þúsund krónur auk þess sem fyrirtækið hefur lagt UNICEF lið í fjáröflun með því að útvega ókeypis söfnunarnúmer í neyð.
Logi & Steve
Logi og Steve eru bara æði. Þeir hafa forritað vefsíðuna okkar, losað um tölvuvírusa og hjálpað okkur endalaust með vefsíðukerfið.