English version

Gínea-Bissá

Gínea-Bíssa er í vesturhluta Afríku. Landið liggur að Norður-Atlantshafi og á landamæri að Gíneu og Senegal.

Portúgalar gerðu ár og strendur Gíneu-Bissá að nýlendu á 15. öld og var landið þungamiðja portúgalskrar þrælaverslunar á 17. og 18. öld. Uppreisn gegn yfirráðum Portúgala leiddi til sjálfstæðis árið 1974.

Gínea-Bissá er meðal tíu fátækustu ríkja heims. Samkvæmt skýrslu Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna um lífsgæði frá 2007/8 er Gínea-Bissá í 175. sæti af þeim 177 löndum sem skýrslan nær til. Til samanburðar er Ísland í 1. sæti.

Þessi veruleiki endurspeglast meðal annars í skelfilega hárri dánartíðni bissáskra barna en því sem næst fjórða hvert barn nær ekki fimm ára aldri í landinu.

Þá fara rúmlega 45% barna á grunnskólaaldri (7-13 ára) á mis við menntun. Meirihlutinn eru stúlkur enda er aðeins um fjórðungur kvenna í Gíneu-Bissá læs.

Íbúafjöldi: 1,47 milljónir 
Höfuðborg: Bissá
Barnadauði undir 5 ára: 223/1.000 
Barnadauði undir 1 árs: 138/1.000
Lífslíkur við fæðingu: 47 ár
GDP á mann: 900 USD
Árleg fólsfjölgun: 3,0%
Íbúar yngri en 18 ára: 54%
Skólasókn barna á grunnskólaaldri: 54%