Malaríunet
Malaría er stærsti einstaki dánarvaldur barna yngri en fimm ára í Afríku. Malaría er hins vegar sjúkdómur sem má auðveldlega koma í veg fyrir og er öflugasta forvörnin sú að tryggja að börn sofi undir rúmnetum sem verja þau gegn ágangi moskítóflugna.
Að kvöldi 1. desember 2005 héldu Baugur Group, Stoðir og Fons fjáröflunarkvöldverð til styrktar UNICEF þar sem söfnuðust 83 milljónir króna. Meirihluti þeirra fjármuna runnu til verkefnis um dreifingu flugnaneta í Gíneu-Bissá. Alls 240 þúsund netum var dreift í þremur áföngum frá nóvember 2006 til maí 2007 og var börnum gefið A-vítamín og lyf við ormum í maga við sama tækifæri.
Er talið að þessar aðgerðir komi í veg fyrir dauða hvorki meira né minna en um 4 þúsund barna.