English version

Menntun í Gíneu-Bissá

Þann 1. desember 2005 skrifuðu Baugur Group, Stoðir og Fons undir samning um að styrkja menntaverkefni UNICEF í Gíneu-Bissá um 135 milljónir. Um er að ræða stærsta framlag einkaaðila við eitt þróunarverkefni í sögu Íslands. Verkefnið er til þriggja ára en með því er grettistaki lyft í skólamálum í landinu.

Styrkurinn er m.a. notaður til að reisa skóla, sjá börnum fyrir skólagögnum og öllum nauðsynlegum útbúnaði, sjá kennurum fyrir þjálfun, endurskoða námsefni og kennsluskrár og margt fleira. Talið er að nær 100 þúsund börn muni njóta góðs af verkefninu áður en yfir líkur. Nú þegar fá 147 skólar stuðning vegna þess og nær 13 þúsund börn sem áður höfðu ekki tækifæri til að ganga í skóla hafa fengið slíkt tækifæri.

Þrátt fyrir mjög mikinn vanda í menntamálum í Gíneu-Bissá hefur skólasókn í grunnskóla aukist um 18% frá árinu 2000, þegar hún var aðeins 48%, til ársins 2006, þegar hún var komin upp í 64%. Nálgun UNICEF í menntamálum er heildræn, þ.e.a.s. hún felst í að fá stúlkur og drengi til að sækja skólann með félagslegum viðhorfsbreytingum til náms, þjálfun kennara og stuðningi við samfélögin svo þau geti byggt eða endurbætt skólann sinn. Þannig voru t.d. 105 skólastofur í 55 skólum úti á landsbyggðinni endurbyggðar og nutu 12 þúsund nemendur góðs af því.
Í þeim þremur héruðum þar sem verkefnið kemur til framkvæmda jókst skólasókn stúlkna úr 31% skólaárið 2003/2004 í 46% árið 2005/2006.