Joðbætt salt
Joðskortur er stórt vandamál í Gíneu-Bissá sem veldur m.a. greindarskerðingu hjá börnum og skjaldkirtilsstækkun. UNICEF á Íslandi hefur styrkt verkefni um joðbætingu salts í Gíneu-Bissá með framlagi frá Pétri Björnssyni og fjölskyldu og hluta þeirrar upphæðar sem safnaðist á fjáröflunarkvöldverði sem Baugur Group, Stoðir og Fons héldu 1. desember 2005.
Markmið verkefnisins er tvíþætt; annars vegar að berjast gegn joðskorti meðal barna og barnshafandi kvenna og hins vegar að ýta undir læsi og menntun stúlkna og kvenna. Hópur kvenna vinnur hálfan daginn við að joðbæta salt, hinn hluta dagsins eru þær í námi.