Vissir þú að...

UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.

Þú ert hér:  

Umönnun ungabarna

Vorið 2004 hét Baugur Group um 20 milljón króna stuðningi við verkefni UNICEF um bætta velferð barna í Gíneu-Bissá. Styrkurinn markaði upphafið að langvarandi stuðningi Baugs Group við verkefni UNICEF í þágu barna í hinu fátæka Vestur-Afríkuríki. Styrkveitingin var söguleg að því leyti að um er að ræða fyrsta tvíhliða þróunarverkefni íslenskrar landsnefndar UNICEF. Því lauk árið 2007.

Verkefnið náði til barna á aldrinum 0-8 ára, með sérstaka áherslu á börn yngri en 3 ára. Markmiðið var að sjá börnum á þessum aldri fyrir lágmarksþjónustu á sviði heilsugæslu, næringar, vatns og hreinlætis, auk menntunar og verndar (m.a. skráning barna) í völdum þorpum og heilsugæsluumdæmum í héruðunum Gabu, Tombali og Biombo. Í krafti verkefnisins var þorpunum gert kleift að veita umrædda velferðarþjónustu, m.a. í gegnum svokölluð djemberens en það eru eins konar dagvistunarheimili fyrir börn á aldrinum þriggja til sex ára.

Tuttugu slík dagvistunarheimili voru byggð fyrir styrk Baugs Group, auk þess sem mæður og aðrir ummönnunaraðilar í 47 þorpum fengu þjálfun og fræðslu um hvernig best er að tryggja velferð ungra barna. Rúmlega 10 þúsund börn nutu góðs af verkefninu með beinum hætti.