UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.
Þú ert hér:
Gjafabréf hafa notið æ meiri vinsælda hin síðari ár og eru þau tilvalin til gjafa fyrir fólk sem á allt eða einfaldlega ef þú vilt gefa gjöf sem skiptir máli.
Þú ræður upphæðinni sjálf/ur og hvort texti gjafabréfsins snýst um menntun eða bólusetningu. Athugaðu þó að framlagið er óeyrnamerkt en textinn er einungis til að gefa mynd af því hve mikið er hægt að gera fyrir framlagið. Við miðum við að menntun fyrir eitt barn í heilt ár kosti 2000 krónur og bólusetning gegn sex algengustu barnasjúkdómunum kostar 700 krónur. Hægt er að gefa menntun og bólusetningu fyrir mörg börn því hvert gjafabréf er prentað sérstaklega svo að þú getur ráðið því hver textinn er.
Hvernig fer ég að?