English version -A +A

Upplýsingasíða heimsforeldra

HEIMSFORELDRAR eru öflugt stuðningsnet fyrir börn um allan heim. Með mánaðarlegum framlögum sínum breyta heimsforeldrar lífi þúsunda barna og hjálpa þeim að öðlast mannsæmandi líf.

Hér á síðunni finnur þú ársyfirlit og fréttabréf HEIMSFORELDRA. Þar kemur fram hvernig framlögum þeirra er varið og saga barna sem notið hafa góðs af verkefnum er sögð.

Ef þú ert ekki þegar heimsforeldri, getur þú skráð þig á skráningarsíðu okkar eða hringt í síma 562 62 62 og slegist í hópinn.

UNICEF ver framlögunum þar sem þörfin er mest hverju sinni. Til að meta þörfina er farið eftir þjóðartekjum viðkomandi lands, tíðni barnadauða (undir 5 ára) og fjölda barna (íbúa undir 18 ára).

Þetta kerfi gerir UNICEF kleift að sinna hjálparstarfi á þeim neyðarsvæðum sem njóta engrar fjölmiðlaathygli. Þannig nær UNICEF líka að starfa sem víðast og er því fyrst á svæðið þegar náttúruhamfarir skella á.

Við sendum heimsforeldrum fréttabréf þrisvar á ári í gegnum tölvupóst eða með gamla laginu. Allir heimsforeldrar fá ársyfirlit í byrjun hvers árs sent inn um lúguna. Þar er farið yfir helstu verkefni heimsforeldra og UNICEF á líðandi ári. 

Ársyfirlit og fréttabréf. Smellið á myndirnar til að skoða pdf-skjal:

            
Ársyfirlit 2008              Vor 2009                        Sumar 2009

            
Ársyfirlit fyrir 2007      Vor 2008                       Sumar 2008                 Haust 2008

       
Ársyfirlit fyrir 2006       Vor 2007                     Sumar 2007                Haust 2007

        
Ársyfirlit fyrir 2005        Vor 2006                     Sumar 2006                Haust 2006