HIV/alnæmi
Á hverjum degi smitast um 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Talið er að tæplega 800 börn deyi á dag af völdum sjúkdóma sem rekja megi til alnæmis.
- Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun: Snúa við útbreiðslu alnæmis, malaríu og annarra sjúkdóma fyrir árið 2015.
Yfir 25 ár eru síðan alnæmi eða AIDS (acquired immune deficiency syndrome) var uppgötvað og stöðugt fleiri börn verða sjúkdómnum að bráð. Árið 2007 var áætlað að 2,1 milljónir barna undir 15 ára aldri væru HIV (human immunodeficiency virus) smituð, 290 þúsund börn dóu vegna alnæmis og 420 þúsund börn fengu nýsmit. Yfir 15 milljónir barna undir 18 ára hafa misst einn eða báða foreldra af völdum alnæmis og milljónir lifa við mjög bágbornar aðstæður sem rekja má til þess að foreldrar eða forráðamenn hafa sýkst.
Þær hörmungar sem HIV veiran veldur snerta börn og unglinga hvað mest. Börn, sem eru bein eða óbein fórnarlömb HIV/alnæmis, búa við fátækt, geta verið heimilislaus, detta úr skóla í lengri eða skemmri tíma, upplifa mismunun, missa af tækifærum í lífinu og deyja langt fyrir aldur fram. Samt sem áður eru það börnin sem gefa UNICEF mestu vonina um að komið verði í veg fyrir faraldurinn.
Barnahjálpin vinnur aðallega á fjórum sviðum til að koma í veg fyrir útbreiðslu HIV/alnæmis. Talað er um hin fjögur Pé, þ.e.:
Preventing mother-to-child transmission: Að koma í veg fyrir smit frá móður til barns með því að prófa þungaðar konur fyrir HIV, veita smituðum konum fræðslu og ráðgjöf og gefa þunguðum konum hömlunarlyf.
Providing paediatric care: Veita ungabörnum, sem eiga í hættu á að smitast, umönnun, gefa þeim rétta næringu og lyf.
Preventing infections among adoloscence and young people: Vinna að fræðslu og forvarnarstarfi fyrir ungt fólk til að þau þekki smitleiðir og viti hvernig eigi að koma í veg fyrir smit.
Protecting and supporting children affected by HIV and AIDS: Veita smituðum börnum heilsugæslu og umönnun, sem og veita börnum, sem eiga veika foreldra eða eru munaðarlaus, umönnun og vernd.
Nánar um HIV/alnæmi á www.unicef.org.
Alþjóðlegt átak UNICEF gegn HIV/alnæmi - Unite for Children, Unite against AIDS!