UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.
Þú ert hér:
|
Hetju-Hugmyndir
Já, gott fólk. Nú þarf enga ofurkrafta til að vera hetja. Þú getur bjargað fólki á svo allt annan og einfaldari hátt. Nú hefur Unicef safnað saman 22 einföldum og afbragðs sniðugum aðferðum til fjáröflunar í baráttunni við hungurdrísilinn og lífsgæðadjöfulinn sem herja í sameiningu á svo ógnar, ógnar mörg börn. Legðu þín lóð á vogarskálarnar, safnaðu áheitum, bjargaðu börnum og vertu hetja andartaksins. Þú þarft ekki einu sinni að kunna að fljúga… Hetjuráð nr. 1. Áheitadagur Mmmmmm… út að borða á Sólon. Ekk’í dag. Í dag er ég hetja. Hvernig…?
Innleiddu litbrigðasinfóníu regnbogans í grámugglegan hversdaginn, lifðu smá tilbreytingu. Gerðu eitthvað fyndið, gerðu eitthvað stórfenglegt eða bara eitthvað leiðinlegt. Skiptir ekki máli. Láttu vini, fjölskyldu eða fyrirtæki heita á þig himinháum upphæðum fyrir að sýna af þér stór-undarlega hegðun í heilan dag. Hvað sem þér flýgur í hug kemur til greina, til dæmis: Gangið um skólann heilan dag í hetju-klæðnaði - Mælum með mömmusaumuðum
Hetjuráð nr. 2. Tónleikar Haldið fjáröflunartónleika. Rottið saman öllum bílskúrsböndum og róturum skólans, eða talið við vin frænda vinar ykkar sem er í frægu bandi og fáið hann til að spila. Rukkið inn á tónleikana og/eða fáið eitthvað fyrirtæki til að styrkja uppákomuna. .
Hetjuráð nr. 3. „Funfair“ á la USA Breytið skólanum í bandaríska sveitalubba-hátíð. Bjóðið uppá andlitsmálningu, kökukast, töskukast, boltakast, kossabás, krókódílahlaup, tertuátskeppni, grill – og látið borga fyrir allt saman, múhú! Hetjuráð nr. 4. Þrælauppboð Ertu orðinn þreyttur á vini þínum? Seld’ann. Vertu hetja. Haldið uppboð á grunlausum sakleysingjum og seljið þá í hálfsdags- til dagsvinnu fyrir monníng. Eigandinn má nýta þrælinn í vinnu fyrir sig innan siðsamlegra og löglegra marka, láta hann bera töskur, ljósrita, glósa, gefa fótanudd og handsnyrtingu o.s.frv. Góð vitundarvakning til að efla ykkur í baráttunni gegn barnaþrælkun! Hetjuráð nr. 5. Basar Matreiddu það sem þú gerir best, hvort sem það eru snúðar, svið, lasagna, rottuborgarar eða egg og beikon. Leyfðu öðrum að njóta (gegn vægu gjaldi). Þú getur sett upp matarbás hvar sem þér dettur í hug. Í vinnunni hjá foreldrum, í skólanum eða úti á gangstétt ef veður leyfir. Hetjuráð nr. 6. Bílaþvottur Settu upp skyndi-bílaþvottastöð á góðum stað. Eins og t.d. á bílastæðinu hjá einhverju stóru fyrirtæki eða fyrir utan skólann þinn. Hetjuráð nr. 7. Götuleikhús Eruð þið með leiklistarbakteríu? Æfið upp metnaðarfulla sýningu: eftirhermur, uppistand, leikrit, söngleik, brúðuleikhús o.þ.h. Setjið upp á fjölförnum stað og rukkið (mikið). Hetjuráð nr. 8. Skólabíó Takið myndbandstækið, DVD-tækið og sjónvarpið með í skólann. Stillið upp á afmörkuðum stað, kveikið á og rukkið fyrir bíóið. Þið getið líka selt popp og kók eða bara flögur og vatn. Þið getið líka komið með Playstation-tölvuna og sjónvarp og skellt upp spilasal. Hetjuráð nr. 9. Matarpeningaplott Fáið velviljaðan pizzastað, hamborgarabúllu, bakarí o.s.frv. til að styrkja ykkur með bílfermi af matvöru. Hrúgið öllu klabbinu inní matsal og bjóðið fólki að fá sér að borða gegn því að láta nestispeningana af hendi. Peningurinn rennur til UNICEF og – voilá! Þið bætið líf barna. Hetjuráð nr. 10. Hetjuband (vinaband) Búið til hetjubönd og seljið í skólanum. Þannig eignist þið vini út um allan bæ. Hetjuráð nr. 11. Götumálari Dröslið málaragræjunum, litum og trönum með ykkur í skólann og bjóðist til að teikna/mála andlitsmyndir af fólki fyrir fúlgur fjár! Fúlgur! Hetjuráð nr. 12. Tískusýning Ef einhverjir eru upprennandi fatahönnuðir geta þeir skipulagt „haute couture“ tískusýningu. Svo væri hægt að selja fötin eftir á til styrktar UNICEF (ef þau eru flott…eða passa). Hetjuráð nr. 13. Flóamarkaður Safnið saman öllum ykkar ónotuðu fötum, gömlum plötum, gömlum draumum og Nokia 5210 símum og haldið risa flóamarkað !!! Hetjuráð nr. 14. Spilakvöld Haldið spilamót með þátttökugjaldi. Allt frá bingó til „Dungeons and Dragons“ er mögulegt.
Hetjuráð nr. 15. „Quiz Night“ Fáið fyrirtæki til að styrkja ykkur og haldið spurningarkeppni með ykkar nefi. Verðlaunaféð rennur til UNICEF, einhver eldklár njörður fær langan og tilkomumikinn titil – allir vinna! Hetjuráð nr. 16. Hversu margar baunir? Fylltu ílát af einhverju spennandi eins og baunum og láttu fólk borga fyrir að giska á hversu margar baunir eru í ílátinu. Hetjuráð nr. 17. Spákona/maður Kanntu á Tarot-spil? Ertu flinkur bollalesari? Kanntu á spákúlu? Ef svo er þá er þetta tækifærið. Mættu í skólann, skelltu spákúlunni á borðið og upplýstu okkur hin dauðlegu um þau grimmu örlög sem bíða handan við hornið. Þú þarft að rukka. Hetjuráð nr. 18. Gönguleiðsögn Veistu allt um Tjörnina? Hefurðu labbað Esjuna upp og niður 100 sinnum? Hefuru sögu að segja frá IKEA? Vertu þá túrgæd. Bjóðið öllum sem ykkur dettur í hug (og jafnvel fleirum (en … það er ekki hægt)) að greiða fyrir „guided tour“ um það svæði sem þið þekkið eða haldið mest upp á. Hetjuráð nr. 19. Snyrtistofa Ertu fær að farða, greiða hár, pússa neglur, nudda eða eitthvað svipað? Hristið snyrtistofu fram úr skálminni og dekrið við aðra á hetjulegan máta. Hetjuráð nr. 20. Stefnumótaþjónusta Hefur þú viðurnefnið Love-doctor? Þá skaltu lækna ástsýki allra vina þinna. Töfralausnin er „stefnumótaþjónusta!“ Taktu við skráningargjaldi, leiddu fólk saman á blindum stefnumótum og framleiddu ást! Hetjuráð nr. 21. Skópússun Pússaðu skó vegfaranda í skuggasundi fyrir óvægið verð. Hetjuráð nr. 22 – 1000. Hvað sem er sem meikar monníng án þess að brjóta lög... Hugmyndabankinn í pdf-skjali.
|