Þú ert hér:  

Ilmur í Mósambík

Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir heimsótti verkefni UNICEF í Mósambík haustið 2008 í tengslum við Dag rauða nefsins. Ilmur hefur verið lykilmanneskja í undirbúningi og framkvæmd á degi rauða nefsins. Hún hefur m.a. verið kynnir í söfnunarþættinum á deginum árið 2006 og 2009 og leikið í fjölda grín-innslaga. Ilmur lék lausum hala í Mósambík og heimsótti m.a. skóla, gaf börnum A-vítamín í bólusetningarátaki UNICEF í landinu, fór í útvarpsviðtal hjá ungmennaútvarpi sem styrkt er af UNICEF og spjallaði við ungmenni í leikhóp sem ferðast um og sýnir leikrit með fræðsluboðskap.

| Mynd 1 af 13 |
Ilmur Kristjánsdóttir krýpur niður við sólsetrið í Mósambík með nokkrum börnum og smellt er af ... byrjar ágætlega.