Um Ingólf Apason

Ingólfur Apason er verndari UNICEF-hreyfingarinnar. Hann vill fræða okkur um lífsskilyrði barna vítt og breitt um heiminn og hefur frá mörgu að segja. Hann langar líka til að við séum dugleg að hreyfa okkur, hlaupa, hoppa, og stökkva, eins og hann gerir svo mikið af sjálfur ... hann er jú einu sinni api. Ingólfur er líka duglegur að borða hollan mat. Ávextir, grænmeti, hnetur og einstaka maur, eru uppáhalds maturinn hans.
Það er nokkuð ljóst að Ingólfur getur kennt okkur margt, en getum við hjálpað honum við eitthvað í staðinn? Í mörgum löndum heimsins eru ekki til margir skólar, spítalar, góðir vegir og flottir bílar. Þar deyja allt of mörg börn vegna sjúkdóma sem auðvelt er að lækna, og vegna vannæringar. Ingólfur er staðráðinn í að bæta þetta ófremdarástand og við það þarf hann á ykkar aðstoð að halda.
Þar sem Ingólfur er mjög jákvæður api er hann þess fullviss að við getum bætt ástandið í fjölda fátækra landa með því að safna fjármunum. Þannig aðstoðum við löndin svo þau geti betur séð um sig sjálf. Besta leiðin við að safna peningum er að gera eitthvað sem er bæði fræðandi, hollt, og skemmtilegt. Þess vegna hafa Ingólfur og UNICEF Ísland búið til fræðslu- og áheitaverkefnið UNICEF-hreyfinguna. Ingólfur vill hvetja íslenska skóla að taka þátt í verkefninu, fræðast um líf barna í öðrum löndum og kenna nemendum sínum gildi þess að leggja sitt af mörkum til mannúðarmála.