Þú ert hér:  

Stórar gjafir

UNICEF á Íslandi hafa í gegnum tíðina borist stórar gjafir frá einstaklingum sem vilja láta gott af sér leiða fyrir bágstödd börn.

Meðal þeirra sem lagt hafa málstað barna lið með þessum hætti má nefna Hrein Loftsson hæstaréttarlögmann, en Hreinn hefur verið einn helsti stuðningsmaður UNICEF á Íslandi fá stofnun landsnefndarinnar. Hreinn hefur stutt verkefni um joðbætingu salts í Gíneu-Bissá og dreifingu malaríuneta þar í landi. Hann var auk þess einn af stærstu styrktaraðilum bólusetningarverkefnis gegn mænusótt í Nígeríu.

Hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir og Ólafur Ólafsson hafa einnig verið miklir velgerðarmenn UNICEF á Íslandi allt frá stofnun. Á vormánuðum 2006 veittu hjónin rúmlega 36 milljóna króna styrk (500.000 bandaríkjadala) til stuðnings menntaverkefnis í hinu fátæka og stríðshrjáða Afríkulandi Síerra Leóne. Í krafti verkefnisins hafa á fimmta þúsund börn fengið tækifæri til að ganga í skóla.

Í janúar 2008 stofnuðu Ingibjörg og Ólafur velgerðasjóðinn Aurora. Við fyrstu úthlutun sjóðsins var 120 milljónum heitið til áframhaldandi uppbyggingar menntunar í Kono-héraði í Síerra Leóne og greiðast þær yfir fimm ára tímabil. Árið 2009 styrkti Aurora velgerðarsjóður útvarpsverkefni í Mósambík þar sem börn fræða jafnaldra sína um mikilvæg málefni eins og forvarnir gegn HIV/alnæmi.

Í september 2005 veitti Pétur Björnsson, fyrrverandi forstjóri og eigandi Vífilfells, fimm milljóna króna styrk til verkefna UNICEF í Gíneu-Bissá. Fjárstuðningnum var varið til verkefnis sem miðar að því að styrkja framleiðslu joðbætts salts í landinu og um leið veita stúlkum og ungum mæðrum menntun. Joðskortur er mikill í Gíneu-Bissá og segir í skýrslu frá UNICEF að áætlað sé að árlega fæðist 12 þúsund börn greindarskert vegna joðskorts mæðra þeirra við meðgöngu. Nánari upplýsingar um joðverkefnið í Gíneu-Bissá má finna hér.

Allir sem hafa áhuga á að styrkja starf UNICEF í þágu barna með stórum gjöfum er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, Stefán Inga Stefánsson, í síma 863-3134 eða á tölvupóstfangið stefan@unicef.is.