45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli. Vertu með.
Þú ert hér:
Nokkrir Íslendingar hafa starfað í lengri eða skemmri tíma á vegum íslenska ríkisins hjá UNICEF.
Ungliðaverkefnið Junior Professional Officer (JPO) er alþjóðlegt og gefur ungu fólki (yngri en 34 ára) tækifæri á að starfa innan alþjóðastofnana. Þar sem stöðurnar eru greiddar af ríkisstjórnum viðkomandi landa er ávinningurinn mikill fyrir alþjóðastofnanir. Íslenska ríkið hefur greitt fyrir tvær slíkar stöður; í Indlandi og í Kenía.
Samstarf Íslensku friðargæslunnar og UNICEF var formfest með samningi í febrúar 2007. Síðan þá hefur fjöldi Íslendinga verið sendur á vettvang til starfa fyrir UNICEF, allt frá störfum við birgðastjórnun til endurhæfingar barnahermanna.
Árið 2009 tók Íslenska friðargæslan þátt í nýju samstarfsverkefni við UNICEF. Um er að ræða stofnun viðbragðslista sem gerir UNICEF kleift að senda upplýsingafulltrúa á vettvang þegar neyðarástand brýst út eða þar sem brýn þörf er á upplýsingafulltrúa.
Níu Íslendingar sóttu námskeið sem UNICEF hélt í Reykjavík í september 2008 og tveir sóttu námskeið í Kaupmannahöfn árið 2009. Í kjölfarið hafa fimm stöður upplýsingafulltrúa á vegum UNICEF verið mannaðar af Íslendingum í tvo til þrjá mánuði í senn; í Georgíu, Tadjikistan, Srí Lanka, Súdan og Palestínu.
Auk þess hafa tveir friðargæsluliðar starfað fyrir UNICEF í Suður-Súdan yfir lengri tíma, tveir fyrir UNICEF í Palestínu og einn í Jórdaníu.