Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Íslenska ríkið

Íslenska ríkið tekur þátt í starfi UNICEF á ýmsum sviðum og hefur stuðningur þess verið að aukast jafnt og þétt á síðustu árum.

Ísland á sæti í stjórn UNICEF alþjóðlega árið 2010.

Framlög
Framlög íslenska ríkisins til UNICEF renna ekki í gegnum landsnefndina heldur eru þau send beint til höfuðstöðva UNICEF í New York og þaðan til verkefna víða um heim. Framlögin koma því ekki fram í reikningum landsnefndarinnar. Er þetta gert til að minnka umsýslu.

Utanríkisráðuneytið hefur markað þá stefnu að efla samstarf við UNICEF og hefur framlag íslenskra stjórnvalda meira en fjórfaldast á fimm árum.

2007 - 87,1 m. kr.
2008 - 124,6 m. kr.
2009 - 158,2 m. kr.

Samstarf um stuðning við fátækustu ríki Vestur-Afríku
Samkvæmt fjórða Þúsaldarmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um þróun er stefnt að því að lækka dánartíðni barna yngri en fimm ára um tvo þriðju (frá 1990 til 2015). Í litla Vestur-Afríkuríkinu Gíneu-Bissá er dánartíðni barna ein sú hæsta í heimi. Í samstarfi við UNICEF á Íslandi ákvað utanríkisráðuneytið að styrkja verkefni UNICEF í Gíneu-Bissá á sviði heilsugæslu. Í því felst m.a. að bólusetja börn, kaupa og dreifa malaríunetum og innleiða fræðslu um hreinlæti og sjúkdóma.

Utanríkisráðuneytið hefur styrkt myndarlega við hinar ýmsu undirstofnanir Sameinuðu þjóðanna á Miðausturlöndum. Árið 2009 veitti ráðuneytið UNICEF í Palestínu yfir 12 milljónir króna til almennra verkefna samtakanna í landinu, en þar leggur UNICEF mikla áherslu á vernd og umönnun barna sem líða mjög fyrir ástandið á hernumdu svæðunum. Næringarskortur er útbreiddur, börn slasast og deyja af völdum jarðsprengna, líkamlegt ofbeldi er algengt og börn þjást af kvíðaröskun og þunglyndi. Verkefni UNICEF felast m.a. í bólusetningum, menntun, sálgæslu og fræðslu um næringu og hreinlæti.

Íslenska friðargæslan
Samstarf Íslensku friðargæslunnar og UNICEF var formfest með samningi í febrúar 2007. Í þrjú ár hefur því fjöldi Íslendinga verið sendur á vettvang til starfa fyrir UNICEF, allt frá störfum við birgðastjórnun til endurhæfingar barnahermanna.

Árið 2009 tók Íslenska friðargæslan þátt í nýju samstarfsverkefni við UNICEF. Um er að ræða stofnun viðbragðslista sem gerir UNICEF kleift að senda upplýsingafulltrúa á vettvang þegar neyðarástand brýst út eða þar sem brýn þörf er á upplýsingafulltrúa. Níu Íslendingar sóttu námskeið sem UNICEF hélt í Reykjavík í september 2008 og tveir sóttu námskeið í Kaupmannahöfn árið 2009. Í kjölfarið hafa fimm stöður upplýsingafulltrúa á vegum UNICEF verið mannaðar af Íslendingum í tvo til þrjá mánuði í senn; í Georgíu, Tadjikistan, Srí Lanka, Súdan og Palestínu.

Auk þess hafa tveir friðargæsluliðar starfað fyrir UNICEF í Suður-Súdan yfir lengri tíma, tveir fyrir UNICEF í Palestínu og einn í Jórdaníu.