English version

Aðrar landsnefndir

Margir í hinum vestræna heimi heyra fyrst um UNICEF í gegnum starf hinna 36 landsnefnda. Landsnefndir eru eins og frjáls félagasamtök í hverju landi fyrir sig.

Hlutverk þeirra er að efla réttindi barna í sínu landi og afla fjár til verkefna UNICEF. Einnig styðja landsnefndir við alþjóðlegt starf UNICEF með því að koma á samningum við ríkið og einkaaðila í hverju landi. Einn þriðji af heildartekjum UNICEF kemur frá landsnefndum.

Landsnefndir UNICEF starfa í eftirfarandi löndum:

Andorra, Austurríki, Ástralía, Bandaríkin, Belgía, Bretland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Hong Kong, Írland, Ísland, Ísrael, Ítalía, Japan, Kanada, Suður-Kórea, Litháen, Lúxemburg, Noregur, Nýja-Sjáland, Portúgal, Pólland, San Marínó, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Tyrkland, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.

Nánar um landsnefndirnar.