Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

Laos

Laos er staðsett í Suðaustur-Asíu. Það á landamæri að Mjanmar, Kína, Kambódíu, Víetnam og Tælandi. Landið hefur hvergi aðgang að hafi en hið mikla Mekong fljót rennur í gegnum landið, frá norðri til suðurs. Mekong fljótið er eitt af stærstu fljótum heims. Það er helst Mekong fljótinu að þakka að vesturhéruð Laos, við landamærin að Taílandi, eru frjósöm og láglend. Þar er hrísgrjónarækt helsti atvinnuvegurinn. Í norð-austurhluta Laos, við landamærin að Víetnam er landslagið allt öðruvísi, þar er hrjóstrugt fjalllendi sem er erfitt yfirferðar. Á þessu svæði er ekki auðvelt að rækta hrísgrjón og því þjást margir þar af hungri.

Laos var frönsk nýlenda þangað til 1949.Eftir það tók við borgarstyrjöld sem stóð til 1975 þegar hreyfing kommúnista náði völdum í landinu. Enn eru við völd kommúnísk stjórnvöld, en talsvert er þó búið að slaka á efnahagshöftum síðustu áratugi.


Íbúafjöldi:
6,2 milljónir
Höfuðborg: Vientiane
Barnadauði undir 5 ára:
61/1.000
Barnadauði undir 1 árs:
148/1.000
Lífslíkur við fæðingu:
65 ár
GDP á mann:
940 USD
Árleg fólksfjölgun:
1,7%
Íbúar yngri en 18 ára:
2,8 milljónir
Skólasókn barna á grunnskólaaldri:
84%

Ein sérstök námsgrein sem er kennd er börnum í Laos fjallar um sprengjur og jarðsprengjur. Á meðan Víetnamstríðinu stóð (1964-1975) varð Laos fyrir miklum sprengjuárásum. Þrátt fyrir að sérfræðingar séu sífellt að leita að jarðsprengjum og grafa þær upp, leynast ennþá þúsundir af ósprungnum sprengjum víða í Laos. Sprengjurnar eru lífshættulegar fyrir fólkið sem þarf að fara um landið. Börnin sem vinna og leika sér í skógunum og á ökrunum safna oft saman leifum af sprengjum sem þau finna. Málmur er mikils virði í Laos, og með því að selja hann er hægt að fá peninga fyrir fjölskylduna. Hættan er að sprengjan, sem hefur legið í jarðveginum í áratugi, springi þegar maður tekur hana upp eða stígur á hana. Af því getur hlotist varanlegur skaði á hönd eða löpp og barnið getur jafnvel dáið. Til að koma í veg fyrir slys af völdum sprengja, kennir skólinn börnunum að þekkja hvernig sprengjur og jarðsprengjur líta út og hvern þau eigi að láta vita ef að þau sjá sprengjur í jörðinni.
 

Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir af börnum í Laos.

| Mynd 1 af 10 |
Mynd frá Laos