Vissir þú að...

126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.

Þú ert hér:  

Ástandið í Líbanon versnar dag frá degi - lélegar samgöngur hamla hjálparstarfi

Ástandið í Líbanon versnar dag frá degi eftir að Ísraelar hófu árás á suðurhluta landsins 12. júlí síðastliðinn. UNICEF hóf strax víðtæka neyðaraðstoð þrátt fyrir að erfitt sé að komast að vissum svæðum þar sem allir vegir og flugvellir hafa verið eyðilagðir. Þegar þetta er ritað er tala látinna 860 og 3265 liggja særðir vegna átakanna, en ljóst er að fleiri munu liggja í valnum ef heldur áfram sem horfir. UNICEF hefur fordæmt árásirnar harðlega og segir nauðsynlegt að hjálparsamtökum sé veittur óhindraður aðgangur að þeim sem mest eru þurfandi í Líbanon. Sprengjuárásir á helstu samgönguleiðir í dag hamla enn frekar hjálparstarfi og bólusetningarátaki UNICEF.

Börn á flótta
Rúm 900 þúsund manns hafa þurft að flýja heimili sín og er nær helmingur þeirra börn. Sumir hafa fundið hæli hjá ættingjum og vinum, en stór hluti hefst við í skólum og almenningsgörðum. Í landi þar sem er 97% skólasókn eru fleiri hundruð skólar nú óstarfhæfir. Í stað kátra barna hírast þar fjölskyldur sem hafa þurft að flýja heimili og lífsviðurværi vegna sprengjuárása. Talið er að um 180 þúsund manns hafi farið yfir landamærin til Sýrlands þar sem meirihluti þeirra hefst við í flóttamannabúðum. Í dag var aðal veginum til Sýrlands lokað vegna sprengingar þar, þannig að óljóst er með hvort hægt verði að flytja fleira fólk yfir landamærin. Allt í allt er um milljón manns, og þar af hálf milljón barna, á flótta.

Bólusetningarherferð UNICEF hamlað
UNICEF, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og frjáls félagasamtök í samstarfi við heilbrigðismálaráðuneyti Líbanon hóf bólusetningarátak í dag, 4. ágúst, gegn mislingum og mænusótt. Einnig verður A-vítamíni dreift til barna undir 5 ára aldri. Átakið mun ná til 18 þúsund barna sem hafast við í flóttamannahópum í og við Beirút. Í næstu viku verður athyglinni síðan beint til annarra svæða. Hins vegar hefur vegum verið lokað sem hamlar því að hjálpargögn berist. Of hættulegt er að fljúga yfir sum svæði. Frá og með deginum í dag er aðeins hægt að nota sjóleiðina til landsins, en þó verður reynt að keyra með gögn. Þessi staða hamlar bólusetningarátakinu vegna þess að sum af þeim frjálsu félagasamtökum sem UNICEF reiddi sig á treysta sér nú ekki til að fara með bóluefnin því leiðin sé of hættuleg og því ógerlegt að komast til þeirra sem mest eru þurfandi. Sömuleiðis getur bóluefni eyðilagst ef því er ekki haldið kældu, en kæliboxin duga ekki til ef vegatálmar stöðva bílana. Einnig er mikil þörf á bensíni, en talið er að bensín dugi aðeins til nokkura daga til viðbótar.

Viðbrögð UNICEF
UNICEF og samstarfsaðilar flytja neyðargögn til Líbanon á nær hverjum degi, en fram að þessu hafa verið sendir 48 vatnstankar (5000 lítra hver) sem reiknað er með að gagnist 23.347 manns. Fyrir árásirnar voru 100% íbúa með aðgang að vatni, en eftir á að koma í ljós hvort mikið af vatnsbyrgðum og dælum hafa verið eyðilagðar. UNICEF hefur dreift hreinlætispakka, sem inniheldur sápur, vatnbrúsa, vatnshreinsitöflur og fleira, til yfir 600 fjölskyldna. Auk þess hefur fleiri sápum verið dreift. Miklu magni af A-vítamíni hefur verið dreift til barna, sem og saltupplausnum og lúsa-sjampói. Um 1800 börn hafa notið góðs af leikjapökkum UNICEF, en í þeim eru m.a. boltar, sippubönd, svo að börnin geti haldið áfram að leika sér þrátt fyrir erfiða tíma.
Mikil þörf er á verkjatöflum og hefur UNICEF dreift 800 pökkum af Parasetamóli til Líbanon og skrifstofa UNICEF í Líbanon hefur þegar keypt sjúkragögn, sápur, vatnsbrúsa og leikföng og dreift þeim til þurfandi barna. 

Neyðargögn flutt til Líbanon
Fyrir utan þau hjálpargögn sem hafa verið flutt til landsins vegna bólusetningarátaksins, hefur UNICEF sent fjölda hjálpargagna og reynir eftir besta megni að standa vörð um líf barna þrátt fyrir gríðarlega erfiðar aðstæður. Samantekt á þeim hjálpargögnum sem UNICEF hefur dreift til þurfandi barna og fjölskyldna í Líbanon:

Ýmis nauðsynleg lyf (þar á meðal saltupplausnir og efni til lúsa meðferðar). Náð hefur verið til 50 þúsund barna.
48 vatnstankar, hver 5000 lítra, til Beirút, Aley og Chouf. Náð hefur verið til 23.347 manns.
237 vatnspakkar (með brúsum, vatnshreinsitöflum og fleiri hlutum) til Beirút, Mount Líbanon, til suðurs og norðurs, og Bekaa. 78.000 flóttamenn hafa notið góðs af vatnspökkunum.
3150 pakkar af vatnshreinsitöflum til Beirút og suðurs. 63.315 flóttamenn hafa fengið pakkana.
26.396 pakkar af sápustykkjum hefur verið dreift til Beirút, Mount Líbanon, til suðurs og norðurs, og Bekaa. Sápurnar gagnast 100.772 flóttamönnum.
263.608 bleyjur hefur verið dreift til Beirút, Mount Líbanon, til suðurs og norðurs, og Bekaa. 88.235 ungbörn njóta góðs af þeim.

Fjölmiðlar:
Hafið samband við skrifstofu UNICEF Ísland í síma 552 6304 eða sendið tölvupóst á anna@unicef.is ef þið þarfnist nánari upplýsinga um stöðu mála í Líbanon, hjálparstarf eða annað. Fulltrúar UNICEF á svæðinu geta veitt viðtöl. Sjá einnig www.unicef.org.