Lífsafkoma og þroski ungra barna
Að jafnaði deyja rúmlega 25 þúsund börn á dag af orsökum sem auðvelt er að koma í veg fyrir.
- Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Að lækka tíðni ungbarnadauða (undir fimm ára aldri) um þriðjung fyrir árið 2010 og um tvo þriðju fyrir árið 2015.
Á hverju ári fæðast 132 milljónir einstaklingar inn í þennan heim og hefja það ótrúlega ferli að þroskast frá varnarlausum kornabörnum í virka einstaklinga.
En á hverju ári er stór hluti af þeim sem mætir hindrunum í þroskaferlinum - þau eru svipt ástúð, umönnun, góðu uppeldi, heilsugæslu, næringu og vernd sem þau þarfnast til þess að lifa góðu lífi, vaxa og þroskast.
Á hverju ári deyja um 9,2 milljónir barna áður en þau ná 5 ára aldri og tugir milljóna verða fyrir líkamlegri eða andlegri fötlun einungis vegna þess að þeim og forráðamönnum þeirra skortir þau grunnskilyrði sem börn þarfnast til þess að vaxa og þroskast eðlilega.
Tryggja þarf hverju barni eins góða byrjun í lífinu og hægt er. Framtíð þeirra og framtíð samfélagsins, þjóðanna og heimsins veltur á aðbúnaði barna á fyrstu árum ævinnar.
Þess vegna ver UNICEF mestum hluta af styrktarfé sínu til umönnunar ungabarna, en í því felast m.a. verkefni á sviði bólusetningar, heilsugæslu, dreifingu malaríuneta, skráningar, mæðraverndar, vatns- og hreinslætis og næringar.