English version

Bólusetning

  • © UNICEF/040395/SabellaUNICEF bólusetur 100 milljón börn á ári. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljónum barna.
  • UNICEF er stærsti kaupandi bóluefna í heiminum. Samtökin útvega 40% barna í þróunarlöndunum bólusetningar. Það jafngildir 2,5 milljörðum skammta af bóluefni árlega.

Þegar UNICEF hrindir af stað bólusetningarátaki í viðkomandi landi er lögð áhersla á að ná til allra barnanna. Sömuleiðis er talið nauðsynlegt að veita börnum A-vítamín (tvisvar á ári), joð, lyf við ormum í maga og önnur nauðsynleg vítamín og bætiefni sem getur leitt til heilbrigðara lífs. Í sumum tilvikum eru bólusetningarátök sameinuð dreifingu malaríu-flugnaneta.

Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðabankanum eru bólusetningar og A-vítamín tvær af hagkvæmustu og skilvirkustu uppfinningunum sem völ er á í heilbrigðiskerfinu í dag. A-vítamínskortur getur orsakað blindu til frambúðar en jafnvel áður en blindan kemur fram er barn, sem skortir A-vítamín, í 25% meiri hættu á að deyja af völdum sjúkdóma eins og mislinga, malaríu og niðurgangs. Dreifing á A-vítamín hylkjum hefur afstýrt um einni milljón barnadauða síðan 1998.

Hlutfall bólusetninga fyrir sex stórum sjúkdómum sem bóluefni geta komið i veg fyrir - kíghósti, berklar í börnum, stífkrampi, mænuveiki, mislingar og barnaveiki - hefur aukist úr 10% á áttunda áratugnum í 75% til dagsins í dag.

Mænusótt hefur næstum verið afmáð. Mislingar, sem hafa verið afar algeng dánarörsök barna, hafa minnkað um tvo þriðju á síðasta áratug. Bólusetning gegn stífkrampa hefur bjargað hundruðum þúsunda mæðra og hvítvoðunga og 104 af 161 þróunarlöndum hafa útrýmt stífkrampa fyrir fullt og allt.

Framfarir í tækni og vísindum hafa þá þýðingu að bóluefni gegn ákveðnum tegundum niðurgangs og lungnabólgu munu verða fáanleg á næstu 5-7 árum. Nýlega hafa verið kynnt til sögunnar bóluefni sem vernda börn gegn lifarbólgu B. Þessi bóluefni hafa nú verið innleidd inn í heilsugæsluþjónustu í meira en 40 af fátækustu ríkjum heims.

Rannsóknir eru jafnframt í gangi á bóluefni gegn eyðni og malaríu og endurbætt bóluefni gegn berklum eru í þróun. Nauðsynlegt er að styrkja heilbrigðiskerfin til að tryggja að öll börn geti haft hag af þessum nýju bóluefnum um leið og þau hafa verið viðurkennd til notkunar.

Bóluefnin verja heilu samfélögin þar sem smitsjúkdómar samkvæmt skilgreiningu breiðast auðveldlega út. Dreifing vírusa og baktería getur verið stöðvuð á fyrstu stigum ef nógu mikið af fólki er bólusett. Því fleiri börn sem eru bólusett gegn tilteknum sjúkdómum, því öruggari eru allir íbúar samfélagsins.