English version

Heilsugæsla

© UNICEF/000634/LeMoyneTil að börn megi þroskast og dafna vel er mikilvægt að fylgjast með vexti þeirra og þyngd. UNICEF dreifir vigtum, mælitækjum og málbandi, sem er sérstaklega útbúið til að mæla vannæringu.

Mikil áhersla er lögð á þjálfun og fræðslu heilbrigðisstarfsfólks og sér í lagi þeirra sem annast börn.

Lungnabólga, niðurgangur, malaría, mislingar, eyðni og vannæring eru helstu dánarorsakir barna í þróunarlöndunum. Um leið og UNICEF reynir að fyrirbyggja sjúkdóma með bólusetningu, fræðslu og barnavernd vinna samtökin markvisst að því að koma sjúkum börnum til hjálpar. UNICEF dreifir m.a. malaríulyfjum, HIV lyfjum, sýklalyfjum og verkjalyfjum til þurfandi barna.

UNICEF vinnur náið með yfirvöldum heilbrigðismála í hverju landi fyrir sig, heilsugæslustöðvum og minni heilsuselum í samfélögunum sjálfum.