yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?
Þú ert hér:
Helmingur mannkyns, 3 milljarðar, býr á svæðum þar sem malaría er landlæg. 350-500 milljón tilfelli koma upp á hverju ári sem leiða til um milljón dauðsfalla. 80% þessarra dauðsfalla eru meðal afrískra barna undir fimm ára aldri. UNICEF leggur því mikla áherslu á að dreifa netunum til yngstu barnanna eða þeirra sem eru viðkvæmust fyrir smiti.
Dreifing moskító-flugnaneta og fræðsla um notkun þeirra er ein besta forvörnin gegn malaríu því ekki er enn hægt að bólusetja gegn sjúkdómnum. Ef barn sýkist er mikilvægt að það komist undir læknishendur eins fljótt og kostur er því sjúkdómurinn getur dregið barn til dauða á örfáum dögum. UNICEF dreifir malaríulyfjum til heilsugæslustöðva, en þau eru frekar kostnaðarlítil og geta bjargað barnslífum.
UNICEF er aðili að alheimsátaki til að stöðva útbreiðslu malaríu sem heitir Roll Back Malaria. Nánar um það hér.