English version

Mósambík

Mósambík er staðsett í suðaustur Afríku og liggur að Indlandshafi. Landið lýsti yfir sjálfstæði frá Portúgölum árið 1975 án þess að hafa unnið sjálft stríðið. Landið stóð veikum fótum á þessum tíma og snéri sér fljótlega til Sovétríkjanna og Autur-Þýskalands um samstarf. Auk þess leiddi spenna í nágrannalöndum til borgarastríðs í landinu árið 1976.

Upp úr 1983 fór landið að hverfa frá sósíalískum stjórnarháttum og fikra sig í átt að lýðræðislegum breytingum. Það var þó ekki fyrr en árið 1994 að fyrstu lýðræðislegu kosningarnar voru haldnar í landinu. Frelimo, sem barðist fyrir sjálfstæði, hefur lengst af haldið um stjórnartauma landsins.

Hagvöxtur hefur verið stöðugur eftir einkavæðingu ríkisfyrirtækja og afnám inn- og útflutningshafta. Erlent fjármagn og fjárfestingar streyma til landsins í auknum mæli. Þrátt fyrir vaxandi velsæld er vissulega mikil fátækt og hefur HIV/alnæmi sett strik í reikninginn á síðustu árum. Það sést í því að lífslíkur við fæðingu hafa lækkað að undanförnu.

Flóð og fellibyljir hafa valdið eyðileggingu, sem og þurrkatímar. Um 40% barna fá ekki nægan mat til að þroskast eðlilega sökum uppskerubrests. UNICEF bregst ávalt við því neyðarástandi sem skapast á regntímanum vegna flóða og hefur náð miklum árangri í viðbrögðum við neyð í landinu, t.d. með því að halda niðri kólerufaraldri og öðrum smitsjúkdómum sem breyðast út við slíkt neyðarástand.

Vaxandi tíðni HIV smita er UNICEF áhyggjuefni, en yfir 12% 15-49 ára fólks er smitað og 1,5 milljón barna eru munaðarlaus. UNICEF telur að matarskortur og HIV/alnæmi séu helstu vandamálin sem blasa við í Mósambík.

Skólasókn hefur aukist á undanförnum árum, bæði meðal stúlkna og drengja, en enn nær um helmingur þeirra ekki að klára grunnskólann.

Börn deyja af völdum malaríu, niðurgangs, öndunarfærasýkinga og sjúkdóma sem hægt er að bólusetja gegn. UNICEF hefur þó náð miklum árangri í bólusetningu barna í Mósambík.

Samkvæmt skýrslu Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna um lífsgæði frá 2007/8 er Mósambík í 172. sæti af þeim 177 löndum sem skýrslan nær til. Til samanburðar er Ísland í 1. sæti.

Íbúafjöldi: 21 milljón
Höfuðborg: Mapútó
Barnadauði undir 5 ára: 168/1.000
Barnadauði undir 1 árs: 115/1.000
Lífslíkur við fæðingu: 42 ár
GNI á mann: 320 USD
Skólasókn barna á grunnskólaaldri: 60%