UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.
Þú ert hér:
Hvort viltu rautt nef sem étur gamla skó, nef sem dreymir um að vera tannsmiður eða rautt og skrýtið nef sem fer allra sinna ferða á einhjóli?
Rauðu nefin í ár eru einstaklega skemmtileg!
Skoðaðu myndirnar hér að neðan og lesta allt um þau Skjóðu, Skottu og Skrepp.
Með því að festa kaup á þeim félögum styrkir þú mikilvæg verkefni UNICEF og gleður um leið alla þá sem eignast þá og setja rauðu nefin upp.
Rauðu nefin kosta 1.000 krónur og verða seld í Bónus, Hagkaup, MP banka og hjá Te & Kaffi. Skátarnir munu einnig bjóða nefin til sölu víða um land.
Nefin er síðan tilvalið að hafa við höndina þegar horft er á skemmti- og sjónvarpsþáttinn dag rauða nefsins á Stöð 2 í opinni dagskrá föstudaginn 9. desember næstkomandi!