Vissir þú að...

45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli. Vertu með.

Þú ert hér:  

Neyðarsafnanir

©UNICEF/DeanFrá stofnun UNICEF á Íslandi hefur landsnefndin stutt við ýmis hamfara- og neyðarsvæði. En UNICEF alþjóðlega starfar í nærri 160 löndum og svæðum og því ljóst að þörfin er víða mikil.

Skelfilegt ástand í Austur-Afríku

Sumarið 2011 bárust skelfilegar fréttamyndir frá Sómalíu, Keníu, Eþíópíu og Djibútí. Mestu þurrkar í yfir hálfa öld ollu miklum búsifjum, sem aftur bættust ofan á langvarandi átök í Sómalíu og stighækkandi matvælaverð. Mörg hundruð þúsund börn voru lífshættulega vannærð og þurftu á tafarlausri mannúðaraðstoð að halda.

Hér má sjá vídeó um málið.

Átökin í Líbíu 2011

Í mars 2011 hóf UNICEF á Íslandi neyðarsöfnun fyrir barnung fórnarlömb átakanna í Líbíu. UNICEF studdi meðal annars flóttafólk á landamærum Líbíu og sendi hjálpargögn á vettvang. Íslendingar tóku vel í neyðarsöfnuna.

Hér má sjá myndir af landamærum Líbíu.

Flóðin í Pakistan 2010

Í ágúst 2010 hófust mikil flóð í Pakistan. A.m.k. 20 milljónir manna urðu fyrir beinum áhrifum af flóðunum sem komu í kjölfar mikilla monsún-rigninga, þar af um helmingurinn börn. UNICEF á Íslandi safnaði fyrir neyðaraðgerðirnar í Pakistan meðal íslensks almennings.

Hér má sjá myndasafn frá Pakistan.

Jarðskjálfti á Haítí 2010

Öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí þann 12. janúar 2010. Heimili fólks í Port-au-Prince og nágrenni voru ekki bara í molum, heldur voru skólar, heilsugæslustöðvar og aðrar byggingar í rúst. Skrifstofa UNICEF laskaðist jafnvel í jarðskjálftanum. Neyðaraðgerðir hófust nær samstundis. UNICEF á Íslandi safnaði fyrir fórnarlömb jarðskjálftans.

Myndasería frá Haítí - tveimur vikum eftir hamfarirnar.

Átök í Gaza 2008 og 2009

UNICEF á Íslandi sendi 1,6 milljónir íslenskra króna til neyðar- og uppbyggingarverkefna UNICEF í Gaza eftir árás Ísraela í desember 2008. Einn þriðji látinna í átökunum - yfir 430 - voru börn, auk þess sem 1872 börn særðust, sum alvarlega. Árásirnar stóðu í þrjár vikur frá 27. desember 2008 til 18. janúar 2009.

Sjá myndaseríu um ástandið á Gaza.

Hvirfilbylur í Mjanmar (Búrma) 2008

Eftir að hvirfilbylurinn Nargis fór yfir Mjanmar í byrjun Maí 2008 hóf UNICEF á Íslandi neyðarsöfnun. Sendar voru 2,5 milljónir til neyðarverkefna í landinu.

Jarðskjálfti í Pakistan 2005

UNICEF á Íslandi sendi 2,5 milljónir íslenskra króna til neyðarverkefna UNICEF í Pakistan eftir að jarðskjálfti reið yfir í október 2005.

Flóðbylgjan í Indlandshafi 2004

UNICEF var eitt af fimm hjálparsamtökum á Íslandi sem tók þátt í sjónvarpssöfnun fyrir fórnarlömb hamfaranna í Suður-Asíu sem bar heitir Neyðarhjálp úr norðri. Íslenska þjóðin sýndi hvað í henni býr og alls söfnuðust 110 milljónir króna sem skiptir á milli hjálparsamtakanna fimm. UNICEF fékk 16,5 milljónir og rann það til ýmissa neyðarverkefna á hamfarasvæðinu.

 

 

 

| Mynd 1 af 10 |
Stúlkur í Pakistan bíða í röð.