Bólusetning gegn mænusótt
Í maí 2006 tóku íslensk fyrirtæki og einstaklingar höndum saman í baráttunni gegn útbreiðslu mænusóttar og styrktu eitt stærsta bólusetningarátak í heiminum. Í gegnum UNICEF Ísland gáfu einkaaðilar og fyrirtæki samstals 20 milljónir króna til verkefnis um bólusetningar barna undir fimm ára aldri í Nígeríu. Íslenska ríkið veitti svo 100 þúsund bandaríkjadölum til verkefnisins í gegnum WHO. Íslendingar lögðu þannig alls tæpar 28 milljónir til verkefnisins sem samsvarar kostnaði við bólusetningu 300 þúsund barna.
Þeir aðilar sem lögðu verkefninu lið sitt eru: Hreinn Loftsson hrl., Lýsi, Frímúrarareglan á Íslandi, Eimskip, Samherji, Klofningur, Íslenska umboðssalan, Salka-Fiskimiðlun, Norlandia, Ice-Group og Félagsbúið Miðhrauni.
Nígería er síðsta Afríkulandið þar sem mænusótt flokkast enn sem faraldur. Stefnt er að því að útbreiðsla sjúkdómsins í landinu verði stöðvuð fyrir árslok 2008.