hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!
Þú ert hér:
Fótbolti er ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar maður vill hjálpa börnum í neyð. Fótbolti getur hins vegar breytt aðstæðum til hins betra. Það að geta gleymt sér í leik, hlegið, hlaupið um og gantast getur breytt upplifun barna á erfiðum tímum með því að draga úr áföllum og kvíða. Öll börn eiga rétt á því að leika sér og þess vegna er fótboltinn tilvalin gjöf.