126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Upp er runnið árið 2012, fullt af tækifærum og verkefnum! Við hjá UNICEF á Íslandi tökum nýja árinu fagnandi og þökkum innilega fyrir stuðninginn á síðasta ári.
Árið 2011 var afar viðburðaríkt hjá landsnefnd UNICEF á Íslandi. Fyrri hluta árs söfnuðum við meðal annars fyrir hjálparstarfi í Líbíu, þegar loftárásirnar þar voru gerðar.
Í apríl stóðum við að Stjórnlögum unga fólksins ásamt umboðsmanni barna og Reykjavíkuborg. Viðamikil skýrsla með niðurstöðum unga fólksins var síðan kynnt stjórnlagaráði tveimur mánuðum síðar.
Í vor tóku einnig mörg þúsund nemendur þátt í UNICEF-hreyfingunni. Hér var um metárangur að ræða og glæsilegt að sjá hvað krakkarnir stóðu sig vel!
Skammt var stórra högga á milli. Í maí kynntum við nýja og metnaðarfulla skýrslu um stöðu barna á Íslandi. Ánægjulegt var að sjá hversu góðar undirtektir hún hlaut og mikla umfjöllun.
Um mitt sumar bárust skelfilegar myndir frá austurhluta Afríku. Verstu þurrkar í yfir hálfa öld bitnuðu þar á milljónum manna - ekki síst ungum börnum. Á endanum var hungursneyð lýst yfir í suðurhluta Sómalíu. UNICEF á Íslandi hafði þá þegar hafið landssöfnun fyrir bágstödd börn á svæðinu. Enn eigum við engin orð til að lýsa viðbrögðunum og því þakklæti sem þau fylltu okkur. Yfir 11.000 manns studdu söfnunina og vel yfir 35 milljónir króna söfnuðust! Starfsfólk UNICEF á vettvangi þakkaði meðal annars eftirminnilega fyrir stuðninginn og börn og ungmenni á Íslandi studdu UNICEF með alls kyns uppátækjum, líkt og sagt var frá í fjölmiðlum.
Ekki leið á löngu áður en undirbúningur fyrir dag rauða nefsins fór á fullt! Meðal þeirra sem þar lögðu okkur lið voru Páll Óskar Hjálmtýsson og Halldóra Geirharðsdóttir. Samið var lag átaksins og ótal sjálfboðaliðar gerðu daginn mögulegan - 9. desember. Átakið tókst gríðarlega vel og við erum í skýjunum með viðtökurnar.
Árinu lauk síðan með því að sannar gjafir UNICEF og jólakortin seldust eins og heitar lummur. Allur ágóði fór að sjálfsögðu til hjálparstarfsins.
Hér er einungis brot talið upp af því sem á daga UNICEF á Íslandi dreif árið 2011.
Fyrir allt þetta - og allan stuðninginn - erum við óendanlega þakklát. TAKK.