Vissir þú að...

yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?

Þú ert hér:  

Davíð & Golíat gefur UNICEF á Íslandi ESET-vírusvörn

Fyrirtækið Davíð & Golíat hefur styrkt starfssemi UNICEF á Íslandi með gjöf á ESET Smart security hugbúnaði. Fyrirtækið er umboðsaðili Eset á Íslandi og bendir á að umrædd vírusvörn hafi verið leiðandi síðastliðin tíu ár og sé viðurkennd sem sú besta af þeim fagaðilum sem gera úttektir á slíkum hugbúnaði.

ESET hefur það að markmiði að veita góðgerðafélögum frían aðgang að hugbúnaði sínum og hafa verið ötulir stuðningsmenn UNICEF víðar en einungis á Íslandi.

Þeir hafa einnig gefið skrifstofum UNICEF í Slóveníu, Haítí, Egyptalandi, Nígaragúa, Eistlandi, Ungverjalandi, Belgíu, Írlandi, Nýja Sjálandi, Jemen, Litháen, Póllandi, Bandaríkjunum, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Ísrael, Grikklandi, Indónesíu, Japan og Rússlandi.

Vilja leggja sitt af mörkum

Yngvi Tómasson, tæknistjóri Davíð & Golíat, segir að með styrk sínum til UNICEF á Íslandi vilji fyrirtækið endurspegla þá stefnu sem það hefur haft frá upphafi og felur í sér að veita góðgerðafélögum sérkjör og styðja við góð málefni.

UNICEF á Íslandi þakkar Davíð & Golíat hjartanlega fyrir!