á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Sólveig Sveinbjörnsdóttir, félagsráðgjafi, hefur unnið hjá UNICEF á ýmsum stöðum í heiminum. Seinast var hún hjá UNICEF í Eþíópíu og sagði frá reynslu sinni í skemmtilegu og ítarlegu viðtali við Hrafnhildi Halldórsdóttur í Samfélaginu í nærmynd.
Sólveig sagði frá barnavernd í Eþíópíu en hún vann að því í samstarfi við stjórnvöld úti að byggja upp félagsþjónustu fyrir berskjalda fjölskyldur. Hér er um langtímaverkefni að ræða sem unnið er allt frá stjórnvöldum og niður í samfélögin sjálf.
Stjórnvöldum er þar veittur tæknilegur stuðningur og mikil áhersla er lögð á samvinnu en ekki að utanaðkomandi fólk mæti á svæðið og segi heimafólki fyrir verkum.
Í útvarpsviðtalinu sagði Sólveig einnig frá starfi sínu fyrir UNICEF í Súdan en stríðsátök brutust meðal annars út daginn sem hún mætti þar til vinnu.
Sólveig ræddi einnig um hjálparstarf á Filippseyjum þar sem hún vann með stjórnvöldum að því að reyna að ná til allra veikburðustu fjölskyldnanna og barnanna. Barnaþrælkun er algeng og fátækt gífurleg. Þar vann fyrir UNICEF að því að byggja upp svipað kerfi og í Eþíópíu.
Sólveig hefur nú unnið að málum sem þessum í sex ár.
Núna stefnir hún í nám í friðar- og átakafræðum í Ástralíu en hún hlaut styrk frá Rótarýhreyfingunni til námsins.
Reynsla Sólveigar af hjálparstörfum á vafalaust eftir að nýtast henni afar vel í náminu og við óskum henni alls hins besta í Ástralíu!