Vissir þú að...

UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.

Þú ert hér:  

Tímamót í baráttunni við lömunarveiki á Indlandi

Merkileg tímamót hafa orðið í baráttunni við lömunarveiki á Indlandi. Rúmt ár er síðan síðasta tilfellið í landinu kom upp.
Engin lækning er til gegn sjúkdómnum og mörg börn sem fá hann örkumlast. Öflug bólusetningarherferð stjórnvalda, meðal annars með stuðningi UNICEF, hefur skilað ævintýralegum árangri: Einungis eitt tilfelli kom upp á öllu Indlandi í fyrra!

170 milljónir ungra barna hafa verið bólusettar ár hvert.

Alistair Gretarsson, upplýsingafulltrúi hjá UNICEF á Indlandi, er að vonum glaður með að lömunarveikilaust Indland sé í augsýn. „ Við erum á síðustu metrunum á löngu ferðalagi en það er líka mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr að efla starfið og útrýma sjúkdómnum um allan heim.“

Hin löndin þar sem lömunarveiki er enn landlæg eru Nígería, Pakistan og Afganistan.
Síðan alþjóðleg herferð gegn lömunarveiki hófst árið 1988 hefur tilfellum fækkað um 99 prósent á heimsvísu!
Alistair Gretarsson sagði frá tímamótunum á Indlandi í fréttum RÚV

„Það eru 170 milljónir barna undir fimm ára aldri sem hafa verið bólusett á hverju einasta ári. Það eru tvær milljónir sjálfboðaliða sem eru í Uttar Pradesh og Bihar sem eru fylki á austanverðu Indlandi sem fara inn í hverja einustu lest, hverja einustu rútu, hverja einustu lestarstöð, og á öllum torgum og bólusetja þau börn sem þau finna,“ sagði Alistair meðal annars.

Enn fremur sagði hann að árangurinn á Indlandi gæfi tilefni til bjartsýni í baráttunni við lömunarveiki í öðrum ríkjum þar sem hún væri alvarlegt vandamál, þó aðstæður á átakasvæðum væri eðli málsins samkvæmt erfiðari.

„Og þessi áfangi núna eflir hug allra sem vinna að þessu.“