í dag eru 250.000 börn þvinguð til vopnaðra átaka. UNICEF beitir áhrifum sínum til að frelsa börn undan vopnuðum átökum og aðlaga þau samfélaginu að nýju.
Þú ert hér:
Í dag kallar UNICEF eftir 1,28 milljörðum Bandríkjadala, 157 milljörðum króna, til að fjármagna neyðarhjálpar fyrir árið 2012 en í því felst að koma börnum í yfir 25 löndum til hjálpar. UNICEF birti í dag skýrslu sína, Humanitarian Action Report, en þar er þörfin í ólíkum löndum greind og farið yfir hvaða leiðir UNICEF telur færar til hjálpar.
Rima Salah, aðstoðarframkvæmdastjóri UNICEF segir að þrátt fyrir mikla neyð á Horni Afríku megi ekki gleyma því sem kallað er þögul neyð, víða um heim, á svæðum þar sem neyðarástand hafi ríkt til lengri tíma.
Ólöf Magnúsdóttir, sem vinnur fyrir UNICEF í Pakistan, ræddi einmitt um hina þöglu neyð í sem ríkir í Pakistan viðtali í Speglinum.