yfir 22.000 börn deyja á dag af orsökum sem einfalt og ódýrt er að koma í veg fyrir. Við trúum því að þessi tala geti verið núll. En þú?
Þú ert hér:
Aveda á Íslandi safnaði hvorki meira né minna en 907.767 krónum til styrktar hjálparstarfi UNICEF á Sahel-svæðinu. Framlagið var afhent í gær.
Allt frá því að Aveda á Íslandi var stofnað árið 1978 hafa Aveda hárgreiðslu- og snyrtistofur safnað fyrir hin ýmsu málefni, enda er það eitt af markmiðum Aveda að gefa til baka til samfélagsins. Vörur til styrktar UNICEF og neyðarsöfnuninni fyrir Sahel-svæðið voru því seldar í verslun Aveda í Kringlunni í einn mánuð, auk þess sem um 30 hárgreiðslustofur um allt land tóku þátt.
Þegar UNICEF sendi neyðarkall vegna neyðarástandsins á Sahel-svæðinu ákvað Aveda að bregðast við og styðja neyðarsöfnunina í ár.
UNICEF á Íslandi þakkar Aveda og öllum hárgreiðslustofunum sem lögðu átakinu lið hjartanlega fyrir óeigingjarnt framlag sitt!
Hér er listi yfir hárgreiðslustofurnar sem tóku þátt í söfnunarátakinu:
Aveda Verslun, Kringlunni 8-12, 103 Reykjavík
Unique hár & spa, Borgartúni 29, 105 Reykjavík
Hárhönnun, Skólavörðustíg 8, 101 Reykjavík
Prima Donna, Grensásvegi 50, 108 Reykjavík
Hár Fókus, Grímsbæ, Efstalandi 26, 108 Reykjavík
Hármiðstöðin, Hrísateig 47, 105 Reykjavík
Klippt og Skorið, Hamraborg 10, 200 Kópavogur
Klipphúsið, Bíldshöfða 18, 110 Reykjavík
Vestur hár og snyrtisofa, Hringbraut 119, 107 Reykjavík
Víf, Esjubraut 43, 300 Akranes
Samson, Sunnuhlíð 12, 603 Akureyri
Hárgreiðslustofan Hófí, Kirkjuvegur 3, 625 Ólafsfjörður
Hárgreiðslustofa Margrétar, Daltúni 17, 550 Sauðárkrókur
Hárgreiðslustofan Merlín, Goðabraut 11, 620 Dalvík
Lokkar og Línur, Hafnargötu 35, 230 Keflavík
Hársnyrtistofa Þorbjargar Kristjánsdóttur, Sunnubraut 23, 870 Vík
Snyrtistofa Margrétar, Brekkum 1, 870 Vík
Snyrtistofan Mánagull, Aðalstræti 21, 415 Bolungavík
Hárstofan, Aðalstræti 21, 415 Bolungavík
Hárstúdíóið Sunna, Sunnuhlíð 10, 603 Akureyri,
Jafnvægi, Aveda umboðið, Borgartúni 29, 105 Reykjavík
Hárhöllin, Dynskógar 4, 700 Egilsstaðir
Snyrtistofan Brá, Dynskógar 4, 700 Egilsstaðir
Zpez, Varðan - Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði
Solo, Borgarbraut 58-60, 310 Borgarnes
Betra Hár, Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Hendur í Hári, Hafnarbraut 1 , 740 Neskaupsstaður