yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.
Þú ert hér:
UNICEF stóð fyrir símaleik í tengslum við Evrópumótið í fótbolta þar sem almenningi gafst kostur á að vinna áritaða treyju frá liðsmönnum Fótboltafélagsins Barselóna. Alls bárust 557 smáskilaboð og safnaðist 835.500 krónur fyrir treyjuna. UNICEF á Íslandi þakkar öllum þeim sem tóku þátt.
Eftir úrslitaleikinn var einn vinningshafi dregin úr pottinum í beinni útsendingu á RÚV. Sú heppna var Hildur Markúsdóttir og segist hún hafa sent smáskilaboð í von um að vinna treyjuna fyrir elsta son sinn, Ara Sigfússon 11 ára.
Ari er einlægur fótboltaaðdáandi og hefur haldið með Börsungum frá 4 ára aldri. Sjálfur hefur hann spilað með F.H. í 6 ár og var á leiðinni norður á N1 mótið í fótbolta þegar hann sótti vinninginn á skrifstofu UNICEF á Íslandi. Verðmæti treyjunnar hleypur á tugþúsundum en Ari ætlar að ramma treyjuna inn og hengja upp á vegg.
Landsliðsmenn Börsunga árituðu treyjuna
Fimm leikmenn árituðu treyjuna; Gerard Pique, Victor Valdés, Xavi Hernandez, Carlos Pyol og David Villa. Eins og mörgum er kunnugt voru Pique, Valdés og Hernandez í landsliði Spánar á Evrópumeistaramótinu. Tveir síðastnefndu voru ekki með sökum meiðsla en voru í landsliðinu þegar Spánverjar urðu heimsmeistarar árið 2012 og Evrópumeistarar árið 2008.
Farsælt samstarf UNICEF og Fótboltafélagsins Barselóna
Treyja Fótboltafélagsins Barselóna hefur borið merki UNICEF síðan árið 2006 og var það í fyrsta skipti í 110 ára sögu félagsins sem vörumerki var sett á treyjuna. Félagið hefur styrkt verkefni UNICEF víðs vegar um heiminn um 1,5 milljónir evra á ári síðan árið 2006, en það jafngildir yfir 1,6 milljarði króna. Einn besti sóknarmaður heims, Leo Messi, hefur auk þess spilað hlutverk velgjörðarsendiherra UNICEF frá árinu 2010 og m.a. heimsótt verkefni UNICEF eftir jarðskjálftana á Haítí.