á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Verkefnið snýst fyrst og fremst um að auka lífslíkur barnanna, tryggja þeim rétt til menntunar og ráðast að rótum barnaþrælkunarvandans á Indlandi. Per Heggens, forstjóri IKEA-verkefnisins segir að með því að taka höndum saman við UNICEF hafi verkefnið gefið fjölmörgum indverskum fjölskyldum von. „Í gegnum samvinn IKEA og UNICEF undanfarinn áratug hafa meira en 100 milljónir evra runnið til verkefna UNICEF á Indlandi til að stuðla að langtíma lausnum og breyta lífi barnanna til frambúðar“. Meðal þeirra verkefna sem UNICEF og IKEA hafa unnið saman að:
- Börn í rúmlega 13 þúsund skólum njóta góðs af kennslu frá kennurum sem hafa hlotið góða menntun í kennslufræðum.
- 15 þúsund börn sem áður störfuðu við teppa- og bómullarframleiðslu í landinu hafa nú lært að lesa og skrifa og ganga í skóla.
- 600 barnaverndarnefndum hefur verið komið á laggirnar með það markmið að binda enda á barnaþrælkun.
- Meira en hálf milljón borgara, opinberir starfsmanna og yfirmenn hafa hlotið þjálfun í að bera kennsl á aðstæður sem geta verið skaðlegar börnum og veita þeim vernd.
„Leiðtogastarf IKEA hefur breytt lífi barna til hins betra um heim allan. Fleiri börn fá nú þá næringu sem þau þarfnast til að vaxa og dafna, fleiri börn hafa aðgang að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu og enn fleiri ganga nú í skóla í staðinn fyrir að þræla í verksmiðjum. UNICEF hlakkar til næstu tíu ára í þessu frábæra samstarfi við IKEA“, segir Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF.