Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

Flóttabörn frá Sýrlandi skimuð fyrir vannæringu

Þetta er hluti af samhæfðum neyðargerðum UNICEF í Sýrlandi og í nágrannaríkjum landsins til að mæta vaxandi þörfum þeirra 1,3 milljóna barna sem ástandið í Sýrlandi bitnar á.

Mikill fjöldi flóttafólks hefur leitað í flóttamannabúðir í Jórdaníu seinustu daga og vikur. Skimun fyrir vannæringu barna í búðunum fer fram á sama tíma og vikulegar bólusetningar á staðnum.

Átökin hafa sett alla hefðbundna heilsugæslu úr skorðum þannig að flest flóttabarnanna hafa ekki haft aðgang að reglubundnum bólusetningum eða annarri grunnheilsugæslu.

„Þessu er mikilvægt að bregðast við. Þegar neyðarástand ríkir eru börn berskjölduð fyrir smitsjúkdómum og farsóttum sem brotist geta út,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

„Börn eru berskjölduðust allra. Þau eru einnig fljótust að sýna einkenni vannæringar og því er áríðandi að fylgjast vandlega með þeim. Það er það sem UNICEF leggur nú allt kapp á.“

Styrkir frá Íslandi 

UNICEF á Íslandi hóf á miðvikudag neyðarsöfnun til styrktar hjálparstarfi sínu í Sýrlandi og í nágrannaríkjunum. 

Hægt er að leggja átakinu lið með því að senda sms með skilaboðunum unicef í söfnunarsímanúmerið 1900 og styrkja þannig hjálparstarfið um 1500 krónur.

Einnig er hægt að hringja í söfnunarsímana 908-3000 (3.000 kr) og 908-5000 (5.000 kr) eða leggja söfnuninni lið hér.

Auk þess sem framlögin fara í að koma í veg fyrir vannæringu barna, bólusetja þau og veita þeim grunnheilsugæslu munu þau nýtast til að dreifa hreinu vatni til fjölskyldna, koma upp barnvænum svæðum í flóttamannabúðum og veita börnum sálrænan stuðning.

Áhersla er lögð á að ná bæði til barna í Sýrlandi og þeirra sem flúið hafa landið. Þörfin er gríðarleg og búist við því að hún eigi enn eftir að aukast. Framundan hjá UNICEF er meðal annars að að hefja umfangsmikið bólusetningarátak gegn lömunarveiki og mislingum á meðal flóttabarna í Jórdaníu. Markmiðið er að ná til 100.000 flóttabarna frá Sýrlandi. Innanlands í Sýrlandi vinnur UNICEF að því í samstarfi við aðra að setja saman læknateymi sem fara munu um þau svæði sem verst hafa orðið úti í átökunum, þar á meðal í Aleppo, Damaskus, Dara´a, Hama og Homs. Þeim er ætlað að ná til 175.000 barna og mæðra sem leitað hafa skjóls í skólum og annars staðar og veita þeim lífsnauðsynlega heilsugæslu og aðhlynningu.

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, eru langstærstu barnahjálparsamtök í heimi. UNICEF rekur allt sitt starf með frjálsum framlögum.