Tónlist til styrktar UNICEF í Síerra Leóne
Á síðunni www.steinssonproject.com er hægt að hala niður hljómplötunni Backtracking Eighties, er inniheldur fræg endurútsett popplög frá níunda áratugnum, án endurgjalds og um leið styrkja menntaverkefni UNICEF með fjárframlagi að eigin vali. Á plötunni fer íslenskur flytjandi fyrir hópi breskra tónlistarmanna sem lagt hafa vekefninu lið. Meðal gestasöngvara eru Nik Kershaw átti m.a smellina I Won't Let the Sun go Down on Me, Wouldn't it be good og Wide Boy og Katarina (and the Waves) sem gerði garðinn frægan með laginu Walking on Sunshine og vann síðan Eurovision árið 1997 með laginu Love Shine a Light. Markmið útgáfunnar er að safna nægu fé til að fjármagna byggingu og reksturs í að minnsta fimm barnaskóla í Afríkuríkinu Síerra Leóne.
Síerra Leóne er á meðal fátækustu ríkja heims. Samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna um lífsgæði frá 2007 er landið í neðsta sæti af þeim 177 löndum sem skýrslan nær til á meðan Ísland er í 1. sæti. Gríðarlegur fjöldi barna býr þar við ömurleg skilyrði og fer á mis við grundvallarréttindi sem annars staðar teljast sjálfsögð. Náist makrmið verkefnisins munu fjöldi vanræktra barna í Síerra Leone fá tækifæri til þeirrar menntunnar sem þau eiga skilið – sem eykur á möguleika þeirra til betra lífs og bjartari framtíðar.
UNICEF Ísland hvetur alla til þess að kíkja á síðuna www.steinssonproject.com.