Vissir þú að...

45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli. Vertu með.

Þú ert hér:  

Bóluefni

Fleiri en 600 börn deyja á hverjum degi af völdum mislinga. Enn sorglegra er að koma má í veg fyrir mislingasmit með einföldum hætti. Fyrir aðeins 1.740 krónur er hægt að útvega bóluefni handa 50 börnum og vernda þau þannig gegn þessum banvæna sjúkdómi. Sem liður í baráttunni gegn mislingum er þessi vara kjörin og sem gjöf er hún fegurðin ein.

 

1.740 kr

Tengdar ljósmyndir
©UNICEF/Sabella - Lítil stúlka fær bólusetningu gegn mislingum á heilsugæslusstöð nærri borginni Betlehem á Vesturbakkanum.
©UNICEF/Estey - Barn er bólusett gegn mislingum í þorpinu Ngipik í Indónesíu. UNICEF studdi við allsherjar bólusetningarherferð eftir að jarðskjálfti reið yfir eyjuna Jövu árið 2006.
©UNICEF/Estey - Heilbrigðisstarfsmaður bólusetur barn gegn mislingum í þorpi þar sem mislingar hafa brotist út. Mislingar eru aðalorsök blindu meðal barna og geta leitt til lungnabólgu, heilabólgu og annarra lífshættulegra sjúkdóma.
©UNICEF/Nesbitt - Heilbrigðisstarfsmaður fyllir sprautu með bóluefni gegn mislingum en við hlið hans situr kona með barn sitt. Þau eru stödd á heilsugæslustöð í bænum Gabarin í Nígeríu.
©UNICEF/Pirozzi – Veggmynd sem sýnir heilbrigðisstarfsmenn bólusetja barn prýðir Redemption-sjúkrahúsið í New Kru Town, hverfi í Monróvíu í Líberíu. UNICEF styrkir sjúkrahúsið með bóluefnum, lyfjum, sjúkragögnum og þjálfun starfsfólks.