Vissir þú að...

þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.

Þú ert hér:  

Skóli í kassa

Sjálfsagt eru fáir sem eiga von á því að fá heilan skóla í gjöf! Skóli í  kassa er málmbox fullt af kennslu- og námsgögnum sem gera börnum kleift að halda skólagöngu sinni áfram við neyðaraðstæður. Öryggi og reglufesta er börnum gríðarlega mikilvæg í slíkum aðstæðum og þar gegna skólar stóru hlutverki. Í skólapakkanum má finna stílabækur, blýanta, strokleður, skæri, gráðuboga, liti og jafnvel upptrekkjanlegt útvarp. Lokið á boxinu er hægt að mála með krítarmálningu sem fylgir með og getur þannig nýst sem krítartafla. Þú finnur ekki framsæknari gjöf en þessa, heilan bráðabirgðaskóla fyrir 40 börn sem kostar ekki nema 29.484 krónur!

 

Skóli í kassa
29.484 kr

Tengdar ljósmyndir
©UNICEF/Pirozzi - Íbúar afskekkts fjallaþorps í Pakistan bera hér skóla í kassa frá þyrlu Sameinuðu þjóðanna eftir að jarðskjálfti hafði í för með sér gríðarlega eyðileggingu í héraðinu. Hver kassi inniheldur náms- og kennslugögn fyrir allt að 40 nemendur.
©UNICEF/Estey - Indónesísk börn taka upp námsgögn úr skóla í kassa í búðum fyrir fólk sem missti heimili sín í flóðbylgjunum í Indlandshafi. UNICEF sendi skólapakka sem gögnuðust 560.000 skólabörnum í Indónesíu eftir flóðbylgjurnar.
©UNICEF/Pirozzi - Menn bera skóla í kassa frá vörubíl í norðurhluta Pakistan. Með því að kaupa skóla í kassa handa ástvini þínum hjálpar þú UNICEF við að koma upp bráðabirgðaskóla við neyðaraðstæður. Hver skóli í kassa inniheldur náms- og kennslugögn fyrir 40 nemendur og kennarann þeirra.
©UNICEF/Naing - Kennarar fara yfir náms- og kennslugögn í bænum Hlaing Thar Yar Myanmar. Skólinn fékk þennan skóla í kassa eftir að fellibylur reið yfir Myanmar og hafði gríðarmikla eyðilegginu í för með sér.
©UNICEF/Noorani– Stærðfræðikennari heldur á krítartöflu úr skólapakka UNICEF í bráðabirgðatjaldskóla UNICEF í þorpinu Jacquot Merlin nærri Port-au-Prince á Haítí.
©UNICEF/Noorani – Skólabörn rannsaka innviði skólapakka sem var að berast til bráðabirgðatjaldskólans þeirra fyrsta skóladaginn eftir að jarðskjálfti reið yfir Haítí í janúar 2010.