Oddi
Prentsmiðjan Oddi hefur allt frá stofnun UNICEF á Íslandi reynst mikilvægur samstarfsaðili landsnefndarinnar. Í desember 2007 undirrituðu Oddi og UNICEF styrktarsamning til þriggja ára. Heildarverðmæti samningsins er hátt í 10 milljónir króna. Innifalið í samngingnum er m.a. ókeypis prentun á fréttabréfi heimsforeldra, ársskýrslu samtakanna og bæklingnum Öll börn hafa rétt sem dreift er til allra 11 ára barna á hverju ári. Auk þess gefur Oddi veglegan afslátt af öðru prentverki.
Um Prentsmiðjuna Odda
Prentsmiðjan Oddi var stofnuð árið 1943 og er því yfir 60 ára gamalt fyrirtæki en þó með sterka framtíðarsýn. Oddi byrjaði smátt, en er í dag ein stærsta prentverksmiðja á Íslandi sem býður upp á hönnun, umbrot og úrval prentlausna. Oddi stendur vel að vígi og leggur mikið upp úr samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja.
Nánar á www.oddi.is.