UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.
Þú ert hér:
Bæklingurinn Öll börn eiga rétt er kynning á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna en sáttmálinn er samningur um réttindi allra barna hvar sem þau búa. Öll börn í heiminum eiga að njóta sömu réttinda.
Bæklingurinn er 12 bls. og inniheldur ljósmyndir og reynslusögur af börnum í fátækari ríkjum. Hann hentar vel til mannréttindafræðslu fyrir börn á miðstigi grunnskóla.
Skólar geta pantað eintök með því að senda póst á bergsteinn@unicef.is, en hér má nálgast blað með kennsluleiðbeiningum í tengslum við bæklinginn.